Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 3-1 tap er liðið heimsótti sigursælasta lið EM frá upphafi, Þýskaland, í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2025.
Þýska liðið byrjaði af miklum krafti og skapaði sér tvö góð færi á upphafsmínútum leiksins. Lea Schüller var hársbreidd frá því að pota boltanum yfir línuna strax á annarri mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar kom hún boltanum í netið með góðum skalla eftir fyrirgjöf frá Sarai Linder.

Íslensku stelpurnar vöknuðu þó til lífsins við það að fá á sig þetta mark og færðu sig framar á völlinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn.
Ingibjörg Sigurðardóttir og Hildur Antonsdóttir fengu báðar ákjósanleg færi til að jafna metin, en það var hins vegar Hlín Eiríksdóttir sem gerði það að lokum á 23. mínútu með góðri afgreiðslu eftir fyrirgjöf frá Diljá Ýr Zomers sem skoppaði framhjá Sveindísi Jane Jónsdóttur.

Íslenska liðið varð svo fyrir áfalli eftir rétt tæplega hálftíma leik þegar Sveindís Jane Jónsdóttir var tekin niður á miðjum velli. Sveindís lenti illa á öxlinni og eftir stutta tilraun til að koma sér af stað aftur var ljóst að hún þyrfti á skiptingu að halda.
Það var nokkuð augljóst að það hafði mikil áhrif á íslenska liðið að missa Sveindísi af velli og þýska liðið gekk á lagið. Þjóðverjar voru mun sterkari það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og mörk frá Leu Schüller á 34. mínútu og Lenu Oberdorf á síðustu sekúndum uppbótartíma sáu til þess að heimakonur fóru með 3-1 forystu inn í hálfleikshléið.
A first-half double for Lea Schüller #WEURO2025 pic.twitter.com/FbdjwqCQgx
— UEFA Women's EURO (@WEURO) April 9, 2024
Ef einhverjir vonuðust eftir því að leikurinn yrði auðveldari fyrir íslenska liðið í síðari hálfleik þá varð þeim ekki að ósk sinni. Þýska liðið sótti án afláts og virtist styttast í fjórða mark liðsins með hverju skotinu sem Þjóðverjar tóku.
Þjóðverjar áttu til að mynda skot í stöng eftir rétt rúmlega klukkutíma leik og eftir því sem leið á leikinn gerðu þreyttir fætur íslenska liðsins æ fleiri mistök sem leiddu til þess að íslensku stelpurnar töpuðu boltanum ófáum sinnum á hættulegum stað.
16.503
— DFB-Frauen (@DFB_Frauen) April 9, 2024
DANKE AACHEN! Ganz stark
WIR #IMTEAM #GERISL
Sofieke van Bilsen/DFB pic.twitter.com/RAvW4to8VQ
Til allrar hamingju fyrir íslenska liðið náðu Þjóðverjar ekki að nýta þau færi sem þeir fengu í seinni hálfleik. Íslenska liðið náði að skapa sér nokkur hálffæri, en nýtti þau ekki frekar en Þjóðverjarnir og niðurstaðan varð að lokum 3-1 sigur Þjóðverja.