Mánudagur
Sítruslanga með jógúrtsósu og Tabbouleh

Hráefni
800 gr langa eða annar góður hvítur fiskur
1 og 1/2 lífrænar sítrónur
1 og 1/2 lífrænar appelsínur
3 hvítlauksrif ,skorin í þunnar sneiðar
1 rauðlaukur, skorinn í báta
Svartur pipar (eftir smekk)
Vorlaukur, 4 stilkar skornir í litla bita
1/2 rauður chili, skorinn í þunna hringi
Ca 1 dl eða 1/2 bolli ólífuolía
Sjávarsalt (eftir smekk)
Aðferð:
Stillið ofninn á 180ºC
Skerið fiskinn í bita og setjið í eldfast mót. Kreistið safann úr hálfri appelsínu, hálfri sítrónu yfir fiskinn. Bætið rauðlauk, pipar, salti, vorlauk, hvítlauk, chili í fatið. Skerið afganginn af sítrónuninni og appelsínu í báta og bætið við í fatið.
Látið réttinn marinerast í um 30 mínútur.
Hellið ólífuolíunni yfir fiskinn og bakið í um 30 mínútur.
Jógúrt sósa
1 bolli laktósalaus grísk jógúrt
2 hvítlauksrif - pressuð
1/2 tsk pipar
1/2 tsk salt
1/2 sítróna, safi og börkur
1 tsk hunang
2 msk ólífuolía
1/4 tsk chiliflögur
3/4 tsk þurrkuð mynta eða fersk smátt skorin myntublöð
Öllu blandað saman í skál og hrært vel saman.
Tabbouleh

½ bolli sesamfræ (skipti út fyrir bulgur sem er vanalega notað)
2 bollar agúrka, söxuð smátt
1 bolli tómatar, saxaðir smátt
1/2- 1 tsk. salt
2 búnt steinselja, söxuð smátt
⅓ bolli mynta, söxuð smátt
⅓ bolli ólífuolía
3-4 tsk. sítrónusafi
1 hvitlauksgeiri, pressaður
Aðferð
Blandið öllu hráefninu saman í skál. Látið standa í um 30 mínútur í kæli. Frábært og ferskt salat sem er stútfullt af næringu og vítamínum.
Þriðjudagur
Falafelbollur með gull tahinidressingu og fersku salati

Falafelbollur:
1 1/2 bolli soðnar kjúklingabaunir
1 bolli hrá sæt kartafla (skorin í lita bita eða rifin)
1/2 bolli sólblómafræ
3 msk kasjúhnetur
1 box kóríander
1/2 box steinselja
2 tsk malað kúmen (cumin)
1/4 tsk chili flögur
2 hvítlauksrif, pressuð
salt og pipar
2-3 msk ólífuolía
Smá sítrónusafi
Aðferð:
Hitið ofninn í 190 gráður.
Öllum hráefnum blandað saman í matvinnsluvél, og blandað saman þar til “deigið” er vel klístrað saman.
Setjið bökunarpappír á ofnplötu og gerið litlar kúlur úr deiginu (hér finnst mér voða gott að nota ískúlu skeið til að fá kúlurnar jafn stórar og spara mér tíma í leiðinni)
Bakið inni í ofni í 25-30 mín

Gull tahini Dressing:
1 dI tahini
4 msk sítrónusafi
Safi úr 1/2 appelsínu
3 steinlausar döðlur
1 msk tamari sósa
1 hvítlauksrif
1/2 tsk gullkrydd
1 ½ dI vatn (Bætið við ef þið viljið hafa dressinguna þynnri)
Smá salt og pipar
Allt sett í blandara og blandað vel saman.
„Dásamleg dressing sem geymist í um það bil 5 daga í lokuðu íláti í kæli.“
Miðvikudagur
Krydduð, ljúffeng karrý & mangó grænmetissúpa með salati, brauði og hummus

Hráefni í súpu:
2 msk kókosolía eða olífuolía
1 blaðlaukur skorinn í þunna hringi
3 hvítlauksrif, pressuð
1-2 msk rautt karrýmauk (curry paste)
2 msk mangó chutney (sykurlítið)
Smá biti ferskt engifer
1 tsk Gullkryddblanda (Kryddhúsið)
2/3 ferskur rauður chili -fer eftir því hveru sterka þið viljið súpuna.
5 bollar blandað grænmeti - upplagt að nota það sem er til í ísskápnum. Ég notaði gulrætur, sætar kartöflur, grasker, papriku og tómat.
2 dósir/fernur kókosmjólk (eða ca 4 bollar).
4 bollar grænmetissoð (vatn og grænmetiskraftur)
Salt og pipar
Smá skvetta af límónu- eða sítrónusafa
Aðferð:
Setjið olíu, blaðlauk, hvítlauk og karrýmauk í meðalstóran pott og eldið í nokkrar mínútur á meðalhita.
Hrærið í á meðan og passið að brenna ekki.
Setjið restina sem á að fara í súpuna ofan í pottinn og sjóðið vel saman á meðalhita í um 30 mínútur.
Hrærið reglulega í súpunni.
Þegar allt grænmetið er orðið eldað og mjúkt, færið þá súpuna í góðan blandara og blandið saman eða notið töfrasprota til að mauka súpuna saman.
Saltið og piprið að vild.
Toppið með fallegum litum eins og til dæmis ferskur kóríander sem passar einstaklega vel með þessarri súpu, ristuðum kókosflögum og skvettu af góðri olíu.
Dásamlegur Hummus

Hráefni:
600 gr / 2 krukkur kjúklingabaunir, notið vökva úr annarri krukkunni
2 msk tahini (sesam smjör) eða 3 msk sesamfræ
2 msk góð ólífuolía
safi úr ½ sítrónu
1 hvítlauksrif, afhýtt
1 tsk malað cumin
½ tsk salt
Aðferð:
Setjið allt saman í Vitamix í þeirri röð sem skráð er í uppskriftinni og festið lokið.
Kveiktu á blandaranum á lægsta hraða, auktu síðan fljótlega upp í hæsta hraðann.
Blandið saman í 1 mínútu, notaðu „tamperinn“ til að þrýsta öllu vel í átt að hnífunum.
Kryddið eftir smekk með salti ef þér finnst það þurfa.
„Þessi uppskrift er alveg hreint dasamleg og auðveld og mun ódýrari en að kaupa tilbúinn hummus úti í buð. Það er svo ekkert mál að bæta sólþurrkuðum tómötum, rauðrófu eða karrý og breyta bragðinu. Hummus er frábær sem næringarríkt álegg, ídýfa með fersku grænmeti og kexi eða út á salatskálina.“
Fimmtudagur
Bakaðar sætar kartöflur með þeyttum bleikum salatosti, tómat, epla & basilsalsa
„Dásamlegur réttur sem er frábær einn og sér þar sem hann er vel samansettur af próteinum, kolvetnum og fitu og stútfullur af vítamínum og góðum efnum fyrir þig.“

Sætar kartöflur
3 stk sætar kartöflur
2-3 msk ólífuolía
1 msk Baharat Líbanon kryddblanda frá Kryddhúsinu
Smá salt
Aðferð:
Skerið sætu kartöflurnar langsum í tvennt, setjið á bökunarpappír á bökunarplötu með opnu hliðina upp.
Dreifið olíunni yfir sætu kartöflurnar og kryddið með kryddblöndunni og salti.
Bakið í 200 gráðu heitum ofni í u.þ.b. 30 mín.
Hrærður „Whipped” bleikur salatostur (fetaostur)
1 krukka laktósafrír salatostur frá Arna (hellið olíunni af)
1-2 rauðrófur (fer eftir stærð) flysjaðar og skornar í bita ca. 100-150 gr
1/2 msk cumin duft
Sett í matvinnsluvél og hrært saman þar til blandan er orðin silkimjúk.
Tómat, epla og basilsalsa
2 tómatar skornir í litla bita
1 epli kjarnhreinsað og skorið í litla bita
1 hvítlauksrif, pressað
1/2 box fersk basílíka
4 msk ristaðar kasjúhnetur með chili, saxaðar gróft
Salt & pipar
1/2 dós kjúklingabaunir (vatni hellt af)
2 msk gott pestó
Aðferð:
Byrjið á að blanda kjúklingabaununum við pestóið.
Hrærið svo öllu saman í stóra skál
Marineraður rauðlaukur
„Þennan á ég alltaf inni í ísskáp því ég elska að poppa upp hvaða mat sem er með þessum marineraða lauk.“
Hráefni:
1 rauðlaukur skorin í þunnar sneiðar á mandólíni
2 msk rifin rauðrófa
1 bolli hvítt edik
1 bolli vatn
1 msk hrásykur
1 msk sjávarsalt
1 tsk rósapiparkorn
Aðferð:
Setjið laukinn, rauðrófu og piparkornin í krukku
Hitið edik, vatn, sykur og salt í meðalstórum potti við meðalhita.
Hrærið þar til sykurinn og saltið eru búin að leysast upp, um það bil 1 mínútu.
Látið kólna og hellið yfir laukinn. Setjið til hliðar til að kæla niður í stofuhita.
Geymið síðan laukinn í ísskáp, í allt að þrjár vikur.
Setjið réttinn saman
Toppið hverja sæta kartöflusneið með hrærða bleika salatostinum, dreifið svo jafnt úr salsanu þar ofan á og toppið svo með marineruðum rauðlauk og jafnvel smá sítrónuolíu og salti.
Föstudagur
„Pizzukvöld eru heilög stund á föstudögum hjá okkur en þá sér maðurinn minn og dóttur okkar um eldamennskuna. Ég geri stundum hrökkbrauðspizzurnar mínar í forrétt með matarmiklu salati.“

Skotheld uppskrift af góðu pizzudegi
Hráefni:
1 ½ bolli auk 1 matskeið (368 grömm) volgu vatni
1 hrúga teskeið (3 ½ grömm) þurrger
5 ¼ bollar (613 grömm) "00" hveiti, auk auka til að nota við pizzubotnagerðina
3 teskeiðar (18 grömm) sjávarsalt
Aðferð:
Byrjið á því að blanda vatni og þurrgeri saman og hræra vel þar til blandan freyðir örlítið.
Setjið hnoðarann á hrærivélina og látið hnota á hægum hraða.
Blandið hveiti og salti saman.
Bætið vatns- og gerblöndunni rólega út í.
Þegar allt er orðið vel blandað, látið vélina hnoða áfram í um 10 mínútur.
Þekið skálina með plastfilmu eða rökum klút og látið deigið hefast í 1-2 klst.
Frækex „Pizzur“ með pestói, grænmeti og ávöxtum

Hráefni:
1 ½ bolli hörfræ
1 bolli sesamfræ
½ bolli graskersfræ
½ bolli sólblómafræ
½ bolli möndluduft
1 msk. óreganó
1 tsk hvítlauksduft
1 tsk. sjávarsalt
Smá af cayenne pipar eða svartur pipar
Ca. 2 bollar af vatni
Aðferð:
Öllu blandað vel saman í skál og látið bíða í 2-3 klst. eða þar til að blandan er vel klístruð saman. Næst takið þið blönduna og þrýstið deiginu á pappírsklædda ofnplötu. Ég nota alltaf auka bökunarpappír til að þrýsta deiginu vel niður til að það verði alveg þunnt.
Bakið eða þurrkið í ofni við 160 gráður í allt að 40 mínútur þar til kexið hefur þornað.
Tékkið reglulega á því og snúið deiginu við eftir ca 30 mín.
Það má gjarnan leika sér með kryddin í þessu kexi.
Rautt pestó
2 stk ferskir tómatar
1,5 dl sólþurrkaðir tómatar
1 epli fræhreinsað
1-2 gulrætur
1/4 rauðlaukur
2 steinlausar döðlur
2 tsk óreganó
1/2 tsk chili pipar eða meira (mér finnst best að hafa þetta vel kryddað)
1/2 tsk sjávarsalt
Blandið öllu saman í matvinnsluvél.

„Toppaðu frækexið með pestói, spínati eða klettasalati, jarðarberjum, avókadó, mangó, hnetum, fræjum og jafnvel rifnum parmesan osti eða öðru sem þig langar í.“
Laugardagur
Grilluð Bleikja með möndlum, kókos og litríku salsa

Hráefni:
600 gr bleikjuflök
70 gr möndlur, saxaðar
1/2 msk rifið ferskt engifer, ca 3 cm bútur
Safi og börkur úr 1 sítrónu
1/3 rauður chili, fínt saxaður
2 stk vorlaukur, saxaður
3 msk akasíuhunang
3 msk ristuð sesamolía
3 msk blönduð sesamfræ (svört og hvít eða bara hvít)
1 og 1/2 msk tamarisósa
1/3 bolli ristaðar kókosflögur
1/3 bolli ólífuolía
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður.
Setjið bleikjuflökin í eldfast mót.
Öllu nema bleikjuflökunum blandað saman í skál og borið næst á bleikjuna.
Látið standa í ca 30 mín i kæli og setjið svo inn í heitann ofn í 12-14 mínútur eða þar til allt er orðið vel gyllt á litinn og bleikjan elduð.
Frábært að bera fram með góðu og fersku salsa eins og til dæmis með papriku, tómat, mangó og basil salsa
Papriku, tómat, mangó og basil salsa
2 paprikur, kjarnhreinsaðar og skornar í litla teninga - smá olífuolía, salt og chili flögur
3 tómatar, skornir í litla bita
2 mangó, flysjað og skorið í litla bita
1/3 rauðlaukur skorin í þunnar sneiðar ( marineraður í 30 min í edik/ edil svo hellt af)
1/2 bolli granateplafræ
1/2 búnt basil, gróft saxað
1/2 búnt kóríander, gróft saxað
Aðferð:
Hitið ofninn í 200 gráður.
Setjið papriku bitana á bökunnarpappírs klædda ofnplötu, hellið smá ólífuolíu , salt og chili flögum og bakið í um 20 mínútur.
Dressing
3 msk ólífuolía
2 msk sítrónusafi
1 tsk akasíhunang
Salt & pipar
Setjið allt fyrir dressinguna í krukku, lokið og hrisstið vel saman
Sunnudagur
Unaðsleg sveppa- og timíansúpa með salati
„Dásamleg súpa sem er frábær með hvítlauksbrauði.“

Hráefni:
700 gr sveppir
1 laukur
2 hvítlauksrif
2 selerístilkar
1 msk þurrkað timían
3 msk ólífuolía
2 dósir kókosmjólk
600 ml grænmetiskraftur (vatn og grænmetisteningar)
Aðferð:
Saxið laukinn og selerí smátt.
Steikið sveppi, lauk, hvítlauk, sellerí og timían í nokkrar mínútur í stórum potti í ólífuolíunni.
Bætið kókosmjólk og grænmetissoði í pottinn og látið sjóða við vægan hita í ca 15 mínútur. Smakkið til og bætið ef til vill smá salti út í eða grænmetiskrafti.
Maukið súpuna í lokin með töfrasprota þar til hún verður flauelsmjúk.
Gull kínóasalat með grilluðu rótargrænmeti og gulldressingu

Hráefni:
1 bolli kínóa
2 bollar vatn
1 msk Indverskt karrýduft
Smá salt
Smá svartur pipar
1 msk kókosolía
Aðferð
Setjið allt saman í pott og hrærið vel saman, fáið suðuna upp, lækkið undir pottinum og látið malla þannig í nokkrar mínútur, slökkvið svo undir og lokið pottinum og bíðið í ca 20 mín eða þar til kínóað er tilbúið.
Grænmeti
500 gr sætar kartöflur, þvegnar og skornar í litla bita
4 gulrætur skornar í litla bita
2-3 msk steikingarolía frá Muna
Sítrónupipar
Indverskt karrýduft
Salt, chiliflögur
Allt saman á bökunarplötu með bökunarpappír, blandað vel saman og dreift vel úr og því næst bakað.
Bakið í ca. 20-25 min í 200 gráðu heitum ofni. Takið út og kælið.
Gull sólblómafræ
Hráefni:
2/3 bolli sólblómafræ frá Muna
2 tsk tamari eða sojasósa
1/2 tsk túrmerikduft
1 tsk akasíuhunang frá Muna
Aðferð:
Hrærið vel saman og hitið í ofni í ca 5 mín eða þar til sólblómafræin eru orðin gullin. Gott að setja í ofninn á meðan sætu kartöflurnar og gulræturnar bakast. (Fylgist með að fræinn brenni ekki).
Önnur hráefni í salatinu:
10 stk steinlausar döðlur, skornar í litla bita
1-2 apríkósur eða nektarínur, skornar í litla bita
1/2 box af kóríander saxað gróft
3 msk graskersfræ
1/2 bolli gullsólblómafræ
Gull Dressing
Hráefni:
2/3 bolli góð ólífuolía
Safi úr 1/2 sítrónu
1 msk akasíuhunang eða önnur sæta
1 tsk gullkryddblanda
1/2 tsk svartur pipar
1/4 tsk salt
Smá chiliflögur
Setjið í krukku og hristið saman eða setjið í skál og hrærið vel saman.
Blandið öllum hráefnum saman í stóra skál, gull kínóa, bökuðu sætu kartöflunum og gulrótunum, döðlum, nektarínum, kóríander og fræjum.
Toppið svo með gulldressingunni og jafnvel smá sítrónuberki og sjávarsalti.
Fyrir áhugasama má nálgast fleiri uppskriftir á Instagram og vefsíðunni Jana.is