Samkvæmt tölum frá greiningardeild ríkislögreglustjóra var á fyrstu þremur mánuðum ársins lagt hald á tvöfalt meira magn kókaíns en á sama tíma og í fyrra. Árið 2023 var metár í haldlagningu maríhúana og kókaíns. Efnin eru að mestu leyti innflutt.
„Hér koma gámar inn á hverjum einasta degi, það er verið að flytja inn með skipum. Svo er líka verið að flytja inn flugleiðis með innvortisaðferðum. Með tilheyrandi hættu fyrir þá sem taka þátt í því. Það eru kannski aðal aðferðirnar og svo auðvitað þessi framleiðsla hérna heima,“ segir Þórir Ingvarsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar efnin hafa verið handlögð er umsvifalaust farið með þau í rannsókn en þau eru svo geymd í eins stuttann tíma og mögulegt er áður en þeim er eytt.

„Það eru allskonar áhættur fólgnar í þessu. Þetta eru ekki efni sem eru framleidd á viðurkenndum tilraunastofum, þau eru margvísleg, sum eru hreint og beint hættuleg. Þau geta verið rofgjörn, þannig við reynum að eyða þeim eins fljótt og auðið er.“
Stórhættulegur bransi
Þórir segir ótrúlegt hvað fólk sé tilbúið að leggja sig í mikla hættu við innflutning. Mesta magn efna sem hafa fundist innvortis í burðardýrum er yfir tvö hundruð pakkningar, um tvö og hálft kíló. Gríðarleg áhætta sé fólgin í slíkum innflutningi.
„Hver og ein pakkning getur rofnað og þá er viðkomandi náttúrulega í bráðri lífshættu. Þannig að þetta er mjög alvarlegt mál og stórhættulegur bransi.“

Í sumum tilfellum er þörf á skurðaðgerð til að fjarlægja efnin.
„Það getur líka gerst að meltingarkerfin ráði ekki við þetta og fólk stíflast og allskonar. Þá náttúrulega hefur líkaminn lengri tíma til að vinna á pakkningunum og það eykur líkurnar á að þær leki. Þannig þetta getur verið mjög, mjög hættulegt fyrir þann sem tekur þátt í þessu.“
