Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom málið ekki á borð til þeirra því leitað var til annars aðila, árekstur.is, vegna málsins. Ekki hefur verið um alvarlegt atvik að ræða. Lögregla segir umferð hafa verið afar þunga í morgun og töluverðar tafir.
Umferðaróhapp við Vesturlandsveg

Einhverjar tafir eru á umferð við Vesturlandsveg eins og stendur. Útlit er fyrir að tveir bílar hafi rekist saman. Ekki er vitað hvort fólk hafi slasast.