Langar bílaraðir mynduðust á Vesturlandsvegi. Vísir/Ríkharður
Mikill viðbúnaður var við Vesturlandsveg skammt frá Kjalarnesi fyrir stundu. Veginum var lokað í báðar áttir og langar bílaraðir mynduðust. Sjúkrabílar og lögreglulið voru á staðnum auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til.
Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar var þyrlan kölluð til vegna alvarlegra og bráðra veikinda en ekki slyss, en hafði ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Ekki var búið að skrá málið í kerfi lögreglunnar þegar fréttastofa leitaði upplýsinga þar. Búið er að opna fyrir umferð að nýju.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til, hún lenti á Landspítalanum fyrir stundu. Vísir/Ríkharður