Annar karlmaðurinn er skráður til heimilis í Blönduhlíð í Reykjavík en hinn á Ítalíu.
Fram kemur í ákærunni að mennirnir hafi í félagi mánudaginn 5. apríl 2021 sett á svið umferðarslys á gatnamótum Breiðhellu og Gjáhellu í Hafnarfirði í því skyni að svíkja út vátryggingabætur á grundvelli kaskótryggingar og lögboðinnar ökutækjatryggingar Wolkswagen Passat bíls frá 2012 sem var tryggt hjá VÍS. Annars vegar vegna skemmda á Passatnum og hins vegar vegna skemmda á Volvo S60 bíl frá 2005.
Aðdraganda árekstursins sviðsetta er lýst á þá leið í ákæru að karlmaðurinn sem er skráður búsettur á Ítalíu hafi ekið Volvonum norður Gjáhellu og stöðvað akstur við gatnamót Gjáhellu og Breiðhellu í um fjörutíu sekúndur. Þá hafi hann ekið bílnum hægt í veg fyrir Passatinn sem maðurinn búsettur í Blönduhlíð ók norðvestur Breiðhellu uns árekstur varð á gatnamótunum.
Mennirnir undirrituðu tjónstilkynningu sama dag og sá búsetti á Ítalíu sendi VÍS tilkynninguna í tölvupósti samdægurs. Þannig hafi mennirnir reynt að fá félagið til að bæta tjónið en áætlaður kostnaður af yfirtöku bílanna var 800 þúsund krónur annars vegar og 400 þúsund krónur hins vegar.