Skoðun

Hefur allt til brunns að bera

Árný Björg Blandon skrifar

Ég ákvað fyrir þessar forsetakosningar að kynna mér allar hliðar á öllum frambjóðendum, hlusta, lesa og skoða með opnum hug. Ég var ekki að rýna sérstaklega í þeirra persónulegu skoðanir heldur einfaldlega hæfni þeirra til þess að gegna forsetaembættinu.

Þetta hef ég samviskusamlega gert og komist að niðurstöðu um það, eftir að hafa rýnt í allt og alla, hvaða frambjóðanda ég vil sjá sem forseta á Bessastöðum.

Það er hún Katrín Jakobsdóttir.

Ég vissi vel að ég fengi ádeilur og krítík fyrir það. Þegar maður hins vegar veit að hjartað slær fyrir réttan forsetaframbjóðanda skiptir það engu máli. Þetta er mitt val, ég stend við það enda sjálfsagt og eðlilegt að fá að kjósa þann einstakling sem manni finnst skara framúr.

Katrín hefur sannarlega verið umdeild enda þurft að standa í ströngu og taka ýmsar erfiðar ákvarðanir. Oft hefur verið vont að lesa og heyra henni vera kennt um ýmislegt úr hennar fortíð á þingi, í ríkisstjórn og sem forsætisráðherra. En ég vil bara minna okkur öll á það að hún var þar ekki ein að störfum.

Ég hef unnið á vinnustað þar sem engu var hægt að koma í framkvæmd vegna tiltekins samstarfsmanns og ég valdi þann kost að hætta því ég gat ekki horft upp á óreiðuna.

Mér flaug í hug að mögulega hafi Katrín hugsað stöðuna þannig. Allavega hefur hún lagt stjórnmálin til hliðar með afgerandi hætti til að sinna öðrum hugðarefnum.

Ég veit af afspurn að hún er hlý og nægjusöm enda kemur hún þannig fyrir. Full af orku og gífurlegri þekkingu sem ég veit að við munum njóta góðs af verði hún kosin forseti Íslands.

Katrín hefur að mínu mati allt til brunns að bera sem hún þarf til að verða sá þjóðhöfðingi sem við þurfum á að halda, bæði innanlands og utan.

Höfundur starfar við þýðingar og ritvinnslu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×