Skoðun

Hvers vegna kýs ég „nörd“ í smáríkjafræðum sem for­seta?

Steinn Jóhannsson skrifar

Það styttist í 1. júní þegar Íslendingar kjósa nýjan forseta. Kjósendur geta valið úr stórum hópi frambjóðenda með ólíka sýn á forsetaembættið og stefnumálin eru af fjölbreyttum toga. Baldur Þórhallsson er með stefnumálin á hreinu og hann veit hvert á að stefna verði hann kosinn forseti. Allt frá því að Baldur steig fram sem frambjóðandi hefur hann skilmerkilega talað fyrir mannréttindum og að forsetinn eigi að tala fyrir málum sem sameina fremur en sundra.

Baldur hefur mikið traust úti í samfélaginu og m.a. hefur þjóðkirkjan leitað til hans sem sáttamiðlara í málefnum kirkjunnar og Samtakanna 78. Fréttamiðlar hafa verið duglegir að leita til hans sem álitsgjafa í innlendum sem erlendum stjórnmálum enda er hann „nörd“ í smáríkjafræðum og þekkir íslenskt stjórnkerfi afar vel. Hann hefur lagt áherslu á að Íslandi láti til sín taka á alþjóðavettvangi og þar talar hann af reynslu. Mannréttindi eru í dag ofarlega í huga okkar þegar gengið er á mannréttindi víða um heim. Baldur hefur sýnt að hann hefur hugrekki til að tjá sig um mál sem þurfa að ná athygli ráðamanna, ekki bara á Íslandi heldur einnig erlendis og þannig getur hann haft áhrif.

Baldur er góð fyrirmynd sem við getum litið upp til og verið stolt af. Hann er fjölskyldumaður og eiginmaður hans, Felix Bergsson er með honum í baráttunni og nái Baldur kjöri munu þeir saman beita sér sérstaklega fyrir réttindum barna og ungmenna og hefja samtal við hagsmunaaðila.

Baldur hefur alla þá eiginleika sem til þarf til að vera sameiningartákn þjóðarinnar og til að koma sínum stefnumálum í framkvæmd, þ.e. stefnumálum þjóðarinnar. Hann er hokinn reynslu í alþjóðamálum og einn afkastamesti fræðimaður þjóðarinnar í smáríkjafræðum. Baldur veit hvað þarf til svo Ísland hafi sterkari rödd á alþjóðavettvangi og hafi áhrif meðal þjóða.

Þann 1. júní höfum tækifæri til að breyta gangi sögunnar sem kjósendur og því segi ég kjósum Baldur Þórhallsson, alla leið á Bessastaði.

Höfundur er stoltur stuðningsmaður Baldurs Þórhallssonar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×