Samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu var þátttakan nú svipuð og árið 2016 en þá hafi hins vegar færri verið á kjörskrá. Þá hafi kjörsóknin það sem af er kjördegi verið meiri þannig að það rími við að kjörsóknin utankjörfundar hafi verið minni.
Sömuleiðis eru forsetakosningarnar nú fjórum vikum fyrr en hefur verið þar sem fleiri séu vanalega í fríi sem leiðir til aukinnar kjörsóknar utankjörfundar.

Utankjörfundaratkvæði í forsetakosningunum 2024:
- Alls: 42.697
- Reykjavík Suður: 7.333
- Reykjavík norður: 7.837
- Suðvesturkjördæmi: 12.566
- Norðvesturkjördæmi: 3.509
- Norðausturkjördæmi: 5.145
- Suðurkjördæmi: 6.307