Skoðun

Hví styður Ís­land vopnakaup fyrir Úkraínu?

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir skrifar

Einfalda svarið þessari spurningunni er: Vegna þess að fólk sem berst fyrir sjálfstæði sínu og frelsi gegn blóðugri innrás þarf vopn til að verja sig. Ef við ættum vopn, þá myndum við senda þau. En þegar kemur að fjármagni þá viljum við nýta það til brýnustu þarfa Úkraínu, samkvæmt þeirra eigin mati.

Og málið kemur Íslandi sannarlega við. Varnir eru ekki andstaða við frið heldur eru varnir til að verja friðinn.

Ísland er og verður á hernaðarlega mikilvægum stað. Þess vegna verðum við að vera meðvituð um þann möguleika að um land okkar yrði tekið með vopnum. Það er einmitt vegna þessa langsótta, en ískyggilega, möguleika að Ísland hefur í 75 ár verið hluti af Atlantshafsbandalaginu og er með varnarsamning við Bandaríkin. Ef til slíkra aðstæðna kemur munum við Íslendingar horfa upp á erlenda hermenn leggja sjálfa sig í hættu, særast og falla til þess að vernda okkar herlausa land. Þetta er hryllileg tilhugsun, en fyrir fámennt ríki á hernaðarlega mikilvægu svæði í heiminum, er ekkert annað úrræði tiltækt en að treysta á samtakamátt og fórnfýsi annarra ef á reynir.

Það hefur hefur því verið áhersla mín, í góðu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis og ríkisstjórn að Ísland leiti allra leiða til þess að sýna vina- og bandalagsþjóðum okkar fram á að við séum verðugir bandamenn. Sú skuldbinding sem aðrar þjóðir hafa gert gagnvart okkur krefst þess að við séum fær um að taka skýra afstöðu með þeim þegar ógnir steðja að þeim. Það hefur Ísland gert hingað til og um það hefur ríkt samstaða sem ég er þakklát fyrir.

Höfum líka í huga að öll helstu vina- og bandalagsríki ganga mun lengra í stuðningi við Úkraínu og ekkert þessara ríkja lætur beinar hótanir og ógnandi talsmáta Rússa slá sig út af laginu.

Ólíkt vina- og bandalagsríkjum okkar sem hafa frá fyrstu dögum getað sent birgðir af eigin varnarbúnaði hefur Ísland ekki verið fært um slíkt framlag. Í mínum huga væri það ansi hrokafull afstaða að skilyrða fjárhagslegan stuðning okkar við að Úkraínumenn kaupi ekki það sem þá vantar helst heldur það sem okkur sjálfum líður best með.

Ísland er friðsælt. Fjarlægð frá heimsins vígaslóð hefur verið okkar besta trygging fyrir þessari friðsæld gegnum aldirnar. Nútíminn virðir slíkar fjarlægðir engu. Nú felst trygging öryggis okkar í samvinnu við þau ríki sem standa okkur næst. Ef við ætlum að þiggja þá vernd þá þurfum við að geta staðið kinnroðalaust með bandalagsríkjum okkar og reyna ekki að sleppa ódýrt frá þeim sameiginlegu verkefnum til að verja frið okkar og frelsi.

Höfundur er utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×