Þetta segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en hann ítrekar að lögreglan sé sjálfstæð eining. Hann tekur jafnframt fram að rannsókninni muni ljúka fljótlega.
„Við erum með til rannsóknar nokkur mál og þessi rannsókn er í eðlilegum farvegi. Það má segja það að þessi mál hafa ekki verið í forgangi,“ segir Grímur. Hann tekur fram að rannsóknin sé búin að standa yfir síðan ÁTVR kærði sölu þriggja fyrirtækja fyrir þremur árum og 361 degi síðan.
Erindið hafi engin áhrif á framgang málsins
Eins og greint hefur verið frá kemur fram í erindi Sigurðar að smásala áfengis sé bönnuð öðrum en ÁTVR samkvæmt lögum. Spurður hvort að erindið hafi einhver áhrif á rannsókn lögreglu svarar Grímur því neitandi.
„Við hófum rannsóknina strax þegar við fengum kæruna. Það er oft verið að benda okkur á einhver lögfræðiálit eða þess háttar og við getum bara vísað í yfirlýsingu dómsmálaráðuneytisins um sjálfstæði lögreglu. Þetta hefur engin áhrif á okkur eða framgang rannsóknar þó að fólk sé að benda okkur á einhver atriði sem gætu tengst rannsókninni.“
Felst í rannsókninni hvort málið falli undir lagaramman
Hann ítrekar þá að það felst í rannsókn lögreglu hvort að áfengissala í netverslun falli undir lagaramma áfengislaga og sé þá ólögleg samkvæmt lögum.
„Greining sakarefnis er alltaf hluti af rannsókninni. Við erum að reyna greina hvort að um sé að ræða brot á tilteknum lögum. Við erum með okkar sérfræðinga á því sviði.“
Ekki margar kærur sem hafa borist
Spurður hve margar kærur hafi borist til lögreglunnar síðustu þrjú ár segist Grímur ekki hafa tölu yfir það en að kærurnar séu ekki ýkja margar.
„Sum þessara mála eru frumkvæðismál af okkar hálfu sem er í samhengi við eftirlit sem okkur er ætlað samkvæmt áfengislögum,“ segir hann og bætir við að af frumkvæði lögreglu hafi tvö mál bæst við á síðustu þremur árum og eru því í heildina fimm netverslanir sem eru undir rannsókn og eftirliti lögreglu.