Um er að ræða 460 fermetra atvinnuhúsnæði sem er á jarðhæð og kjallara hússins. Í fasteignauglýsigunni á fasteignavef Vísis kemur fram að rýmið sé innréttað sem skemmtistaður en möguleiki er að breyta því í rými fyrri verslunarrekstur. Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.
Sverrir Einar Eiríksson, eigandi B5, Exit og Nýju vínbúðarinnar, sagði skilið við rekstur staðarins í byrjun maímánaðar þar sem hann ætlaði að beina sjónum sínum alfarið að skemmtistaðnum Exit. Áður höfðu skattayfirvöld yfirvöld innsiglað staðinn í lok apríl.
„B5 Exit gæti maður sagt í gríni. Við höfum sem sagt ákveðið að einbeita okkur að rekstri skemmtistaðarins Exit í Reykjavík og höfum sagt skilið við Bankastrætið í góðri sátt við leigusala,“ skrifaði Sverrir Einar Eiríksson í færslu á Facebook í byrjun maí.
Skrautleg viðskiptasaga
Sverrir Einar keypti rekstur B5 í júní í fyrra ásamt Vestu Minkute, unnustu sinni. Staðurinn hét þá Bankastræti Club og var meðal annars í eigu Birgittu Lífar Björnsdóttur markaðsstjóra World Class. Hún hóf reksturinn í júlí árið 2021, en fyrir þann tíma hafði staðurinn um árabil borið nafnið B5.
Á sínum tíma sagði Birgitta að uppleggið hafi verið að opna skemmtistað sem væri nokkuð frábrugðinn þeim sem fyrir voru í miðbænum.
„Mig langaði að auka fjölbreytnina hérna í miðbænum. Ég hef farið á nokkra staði úti í Miami og LA og mig langaði að fanga þá stemningu,“ sagði Birgitta Líf í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Sverrir Einar á nokkuð skrautlega viðskiptasögu að baki og er nýjasta verkefni hans Nýja vínbúðin, netverslun fyrir áfengi. Talsvert hefur verið fjallað um Sverri í fjölmiðlum undanfarin ár, vegna meiðyrðamáls hans, ólöglegra auglýsinga og gjaldþrots starfsmannaleigu.
Þá var hann í apríl á síðasta ári dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik í tengslum við rekstur þriggja einkahlutafélaga.