Erindið hefur verið sent á borð Knattspyrnusambands Íslands. Knattspyrnudeild Vestra stendur með og styður við leikmanninn en mun ekki tjá sig frekar um málið.
Atvikið átti sér stað í leik gegn Fylki í gær og Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, vakti athygli á því.
Yfirlýsingu Vestra í heild sinni má lesa hér fyrir neðan.
Knattspyrnudeild Vestra harmar að leikmaður liðsins hafi orðið fyrir kynþáttafordómum í leik liðsins á móti Fylki, þegar leikmaður Fylkis lætur rasísk orð í garð leikmanns Vestra falla. Erindið hefur verið sent á borð Knattspyrnusambands Íslands. Knattspyrnudeild Vestra stendur þétt við bakið á leikmanni liðsins og styður hans eins vel og mögulegt er.
Hjá Vestra er ekkert svigrúm fyrir kynþáttfordómum af neinu tagi. Slík ummæli eiga hvorki heima innan knattspyrnuhreyfingarinnar né annar staðar.
Hjá knattspyrnudeild Vestra starfa og iðka einstaklingar á öllum aldri, af öllum kynjum og af hinum ýmsu þjóðernum. Hjá félaginu eru öll velkomin.
Félagið biður fjölmiðla að gefa aðilum málsins svigrúm því eins og gefur að skilja geta atvik sem þessi haft djúpstæð áhrif á þá er málið varðar.