Holland og Frakkland gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins á EM karla í fótbolta. Stig á bæði lið þýðir að þau eru jöfn í efstu tveimur sætum D-riðils að loknum tveimur leikjum.
Kylian Mbappé var ekki með Frakklandi í dag eftir að nefbrotna í fyrsta leik mótsins. Þrátt fyrir það var búist við nokkuð skemmtilegum leik en annað kom á daginn. Holland lagði rútunni og sótti lítið á meðan Frakkar fengu betri færi en tókst ekki að nýta þau.

Hinn léttleikandi Xavi Simons kom boltanum í netið í síðari hálfleik með frábæru skoti eftir að Mike Maignan, markvörður Frakklands, hafði varið boltann út í teig.
Markið var dæmt af þar sem Maignan, markvörður Frakklands, gat ekki skutlað sér á eftir boltanum því hinn hollenski Denzel Dumfries stóð í vegi hans. Þar sem Dumfries var rangstæður var markið dæmt af. Hvort Maignan hefði náð boltanum er svo allt önnur saga.
Xavi Simons thought he had his second-ever Netherlands goal in a 𝐦𝐚𝐬𝐬𝐢𝐯𝐞 moment against France.
— B/R Football (@brfootball) June 21, 2024
...Then VAR overturned it 💔 pic.twitter.com/HcEcPtHQug
Frakkar sóttu örlítið meira undir lok leiks en á endanum var markalaust jafntefli niðurstaðan. Bæði lið því með fjögur stig í D-riðli að loknum tveimur leikjum. Austurríki kemur þar á eftir með þrjú stig á meðan Pólland er án stiga.