Skoðun

Bestun Seðla­banka­stjóra

Karl Guðlaugsson skrifar

Stór hluti af starfi verkefnastjóra er að reyna að besta ferla verkefnis, til að skila verðmætari afurð. Ef Seðlabankastjóri er verkefnastjórinn og afurðin er skilgreind sem lækkun á verðbólgu í 2,5% og minnka eigi þenslu í hagkerfinu verður líka að TÍMASETJA afurðina; skilgreina hvaða dag, mánuð eða ár afurðin á að vera tilbúin. Ef vörður ferlisins eru vaxtaákvörðunardagar og afurðin ótímasett, er endalaust hægt að halda áfram með vitleysuna! Þess vegna eru verkefnastjórar stanslaust að reyna að besta ferla verkefnis til að tryggja að skilgreind afurð sé tilbúin á réttum tíma og ekki er verra ef virði afurðarinnar eykst.

Það eru liðin þrjú ár síðan ungt fólk í blóma lífsins og þar með talin þrjú af börnum mínum fjórum með mökum, tóku lán vegna húsnæðiskaupa eftir að Seðlabankastjóri talaði um að loksins gætu íbúðarkaupendur greitt sambærilega vexti af lánum sínum og jafnaldrar þeirra í Evrópu.

Vaxtaákvörðunardagana, vörður Seðlabankastjóra í þessu ferli, hafa stýrivextir verið ákveðnir9,25% í tæpt ár og hafa alls ekki skilað þeim árangri sem til afurðarinnar var ætlast, auk þess sem tímasetningin er í algjörri ÓVISSU. Á tæpu ári hafa lántakendur flutt sig yfir í verðtryggð lán fyrir meira en 25 milljarða króna, sem þýðir á mannamáli að lengja í hengingarólinni. Greiðslubyrði hefur aukist um 200 þúsund krónur á mánuði af 40 milljóna króna óverðtryggðu láni með breytilegum vöxtum. Þá hefur mörgum milljörðum af gjaldeyrisvaraforðanum verið eytt í að reyna að halda aumum nanó-gjaldmiðli einhvers virði á sama tíma og 42% fyrirtækja fá að gera upp í evru. Þar að auki hafa kjarasamningar verið undirritaðir með loforði um lækkun vaxta. Til að bæta gráu ofan á svart er allt sem bendir til þess að við stefnum hraðbyri í kyrrstöðuverðbólgu (e. stagflation). Ég spyr, er ekki augljóst að Seðlabankastjóri hefur fallið á prófinu að besta ferlið þegar honum dettur ekki einu sinni í hug að lækka stýrivexti?

Þegar skipstjórinn/verkefnastjórinn í brúnni er ekki að standa sig er hann stundum látinn fjúka. Því miður hefur Seðlabankastjóri aukið á óvissuna með ótímasettri afurð og komið með taktlaus og klaufaleg ummæli sem eru börnum mínum, sem berjast í bökkum við að borga af sínum íbúðarlánum, óboðleg. Ég tel ráðlegast að Seðlabankastjóri láti af störfum um næstu áramót með varaseðlabankastjóra peningastefnu, sem hefur stutt hann dyggilega í þessu ferli og helst fyrr, svo nýr skipstjóri/verkefnastjóri geti komið þjóðarskútunni á réttan kjöl.

Höfundur er faðir fjögurra barna




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×