Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Lovísa Arnardóttir skrifar 4. júlí 2024 10:00 Veitingahúsinu var tímabundið lokað síðasta sumar vegna sýkingarinnar. Hamborgarafabrikkan Alls greindust 190 manns með nóróveiru í kjölfar smits sem kom upp á Hamborgarafabrikkunni síðasta sumar. Uppruni smitsins var ekki rakinn til ákveðinna matvæla. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu sóttvarnarlæknis fyrir árið 2023. Alls voru þrjár nóróveiruhópsýkingar skráðar á síðasta ári. Sú stærsta á Hamborgarafabrikkunni.
Í nýrri ársskýrslu sóttvarnalæknis fyrir árið 2023 segir að í júlímánuði hafi borist tilkynningar um einkenni frá meltingarvegi frá fólki sem hafði borðað á veitingahúsi sem var þá rekinn á tveimur stöðum, í Kringlunni og Höfðatorgi. Umfangsmikil rannsókn þeirra hafi svo leitt í ljós að yfir 190 gestir hafi fengið einkenni eins og uppköst, niðurgang og hita sem mátti rekja til nóróveirusýkingar . Í skýrslunni segir að uppruni smitsins í þessari hópsýkingu hafi ekki verið rakinn til ákveðinna matvæla. Í skýrslunni segir að nóróveira smitist auðveldlega á milli einstaklinga með snertismiti en að hún geti líka borist með dropum eða úða í lofti. Veiran geti einnig lifað lengi á yfirborði, til dæmis á hurðarhúnum. Önnur algeng smitleið sé með fæðu og að mengun matvæla frá sýktum einstaklingum sé einnig algeng smitleið þó veiran geti einnig verið í fæðunni í til dæmist ostrum úr menguðu vatni. Töluvert var fjallað um málið síðasta sumar og var þá talað um að allt að hundrað gætu verið sýktir. Í tilkynningu frá Hamborgarafabrikkunni kom fram að staðirnir hefðu báðir verið sótthreinsaðir. Sýni voru auk þess tekin úr hráefnum sem öll reyndust svo neikvæð og ekkert því sem benti til þess að sýkingin hefði komið þaðan. Hamborgarafabrikkan endurgreiddi öllu gestum sem smituðust matinn sem þau borðuðu. Ferðamenn og eldri borgarar Í skýrslu sóttvarnarlæknis er einnig fjallað um aðrar hópsýkingar í fyrra. Þar kemur til dæmis fram að í júlí hafi einnig komið upp sýking í tveimur hópum ferðamanna á landsbyggðinni sem talið er að hafi átt upptök sín á veitingahúsi en veikindi höfðu verið meðal starfsfólks veitingastaðarins. Annars vegar var um að ræða hóp erlendra ferðamanna og hins vegar hóp innlendra eldri borgara. Samtals veiktust 12 einstaklingar og fjórir þeirra þurftu innlögn á sjúkrahús. Nóróveira reyndist vera orsakavaldurinn. Þá barst í maí í fyrra tilkynning um hópsýkingu eftir matarboð í heimahúsi. Átta af níu manna hópi fengu einkenni frá meltingarvegi og reyndist nóróveira sýkingarvaldurinn. Í skýrslu sóttvarnalæknis segir að líklegast sé að smit hafi þarna orðið frá barni í hópnum, sem daginn fyrir veisluna var með sýkingareinkenni.
Veitingastaðir Heilbrigðismál Heilbrigðiseftirlit Reykjavík Kringlan Tengdar fréttir Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið María Rún Hafliðadóttir, forstjóri Gleðipinna sem rekur Íslensku hamborgarafabrikkuna, segir erfitt að loka veitingastað með tíu ára sögu. Launakostnaður geri veitingahúsarekstur afar erfiðan. 4. janúar 2024 15:22 Nóró lokaniðurstaðan og endurgreiða veikum gestum Talið er að umfangsmikil hópsýking sem upp kom hjá starfsfólki og gestum á veitingastað Hamborgarafabrikkunnar í Kringlunni hafi verið af völdum nóróveiru. Þetta er niðurstaða embættis sóttvarnalæknis en nokkuð hefur verið á reiki hvort um nóróveirusýkingu hafi verið að ræða eða bakteríu sem veldur líkum einkennum og hefur greinst í álíka hópsýkingum. 19. júlí 2023 19:26 Hafa greint bæði nóróveirur og E.coli bakteríur en ekkert í matnum Gestir Hamborgarafabrikkunnar greindust sannarlega með nóróveiru. Frá þessu greinir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is en áður var talið að um bakteríusýkingu hefði verið að ræða. 19. júlí 2023 06:37 Fabrikkunni á Höfðatorgi lokað í dag Rekstraraðilar Hamborgarafabrikkunnar hafa ákveðið að loka veitingastað sínum á Höfðatorgi í dag og grípa til sóttvarnarráðstafana vegna mögulegrar nóróveirusýkingar á staðnum. Þetta staðfestir framkvæmdastjóri Fabrikkunnar í samtali við Vísi. 14. júlí 2023 11:23 Nóróveirur grassera í skemmtiferðaskipunum Skæðir nóróveirufaraldrar hafa ítrekað komið upp á skemmtiferðaskipum í ár. Nú síðast í skipi sem sigldi frá Íslandi til New York. 12. júlí 2023 16:50 Mest lesið „Ástandið er að versna“ Erlent Fækkar herforingjum um fimmtung Erlent Verið að bera konuna út Innlent „Þetta er salami-leiðin“ Innlent Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Innlent Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Erlent Gunnlaugur Claessen er látinn Innlent Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Erlent Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Innlent Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Innlent Fleiri fréttir Verið að bera konuna út „Þetta er salami-leiðin“ Gunnlaugur Claessen er látinn Bætir í vind og úrkomu í kvöld Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Ný stjórn Ungra umhverfissinna kjörin Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Mannréttindastofnun Íslands tekin til starfa Segist „eiginlega sammála“ ákvörðun Amgen Vaknaði eldsnemma til að hefja veiðar þrátt fyrir slæma veðurspá „Engin örugg skref, bara eitt illa unnið pennastrik“ Kári Stefánsson í beinni, „hryllingshús“ og trillukarlar Gekk inn á lögreglustöðina í annarlegu ástandi og var snarlega handtekinn Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans Sjá meira
Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið María Rún Hafliðadóttir, forstjóri Gleðipinna sem rekur Íslensku hamborgarafabrikkuna, segir erfitt að loka veitingastað með tíu ára sögu. Launakostnaður geri veitingahúsarekstur afar erfiðan. 4. janúar 2024 15:22
Nóró lokaniðurstaðan og endurgreiða veikum gestum Talið er að umfangsmikil hópsýking sem upp kom hjá starfsfólki og gestum á veitingastað Hamborgarafabrikkunnar í Kringlunni hafi verið af völdum nóróveiru. Þetta er niðurstaða embættis sóttvarnalæknis en nokkuð hefur verið á reiki hvort um nóróveirusýkingu hafi verið að ræða eða bakteríu sem veldur líkum einkennum og hefur greinst í álíka hópsýkingum. 19. júlí 2023 19:26
Hafa greint bæði nóróveirur og E.coli bakteríur en ekkert í matnum Gestir Hamborgarafabrikkunnar greindust sannarlega með nóróveiru. Frá þessu greinir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is en áður var talið að um bakteríusýkingu hefði verið að ræða. 19. júlí 2023 06:37
Fabrikkunni á Höfðatorgi lokað í dag Rekstraraðilar Hamborgarafabrikkunnar hafa ákveðið að loka veitingastað sínum á Höfðatorgi í dag og grípa til sóttvarnarráðstafana vegna mögulegrar nóróveirusýkingar á staðnum. Þetta staðfestir framkvæmdastjóri Fabrikkunnar í samtali við Vísi. 14. júlí 2023 11:23
Nóróveirur grassera í skemmtiferðaskipunum Skæðir nóróveirufaraldrar hafa ítrekað komið upp á skemmtiferðaskipum í ár. Nú síðast í skipi sem sigldi frá Íslandi til New York. 12. júlí 2023 16:50