Nýi styrktaraðilinn veðmálafyrirtæki sem stuðlaði hanaat og streymdi klámi Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. júlí 2024 08:31 Michael Olise glaður á svip í nýju treyjunni, líklega ómeðvitaður um sögu NET88. crystal palace NET88 er nýr styrktaraðili enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace. Sú nýjasta í langri röð veðmálasíðna sem auglýsir framan á treyjum knattspyrnufélaga. Ýmislegt efni hefur verið fjarlægt af síðunni eftir að styrktarsamningur var kynntur, en síðan auglýsti áður beinar útsendingar af klámi og bauð viðskiptavinum upp á að veðja á hanaat.
Umfjöllunin er byggð á rannsóknarvinnu Philippe Auclair og Andy Brown fyrir Josimar. Ensku úrvalsdeildarfélögin settu bann í fyrra við veðmálaauglýsingum, sem tekur gildi tímabilið 2026-27. Fjöldi félaga ber slíkar auglýsingar í dag Sjö félög ensku úrvalsdeildarinnar báru merki veðmálasíðna framan á treyju sinni á síðasta tímabili. Engin af topp sex liðunum, auglýsingasamningar þar hljóða upp á 25-40 milljónir punda en hjá neðantöldum liðum er það á bilinu 2-10 milljónir. AFC Bournemouth (Dafabet) Aston Villa (BK8) Brentford (Hollywoodbets) Burnley (W88) Everton (Stake.com) Fulham (Sbotop) West Ham United (Betway) Crystal Palace og Wolverhampton Wanderers bættust nýlega í hópinn. Félögin tilkynntu styrktaraðilana með eins dags millibili fyrir tæpum mánuði síðan og sögðu bæði um metfé að ræða. Sami aðili virðist eiga síðurnar Styrktaraðilarnir ganga undir sitt hvorum nöfnunum NET88 (Crystal Palace) og DEBET (Wolverhampton W.) en virðast vera í eigu sama aðila og eru skráð undir sama móðurfélagi á Möltu. Þar að auki eru vefsíður NET88 og DEBET keimlíkar, stuðlar þeirra þeir sömu og veðmálaframboðið nákvæmlega eins. Báðar síður sóttu um starfsleyfi í Bretlandi þann 13. mars síðastliðinn. Vefsíðan í vinnslu NET88 auglýsir sig sem stærstu veðmálasíðu Víetnam, en veðmál eru að öllu leiti ólögleg þar í landi. Allt efni á heimasíðu og samfélagsmiðlum fyrirtækisins er á víetnömsku. Þegar farið er á breska lénið „NET-88.co.uk“ stendur að vefsíðan sé í vinnslu og fari í loftið fljótlega. Vefsíðan hefur verið í vinnslu frá því fyrirtækið var skrásett í Bretlandi þann 13. mars. Stofnandinn látin TikTok stjarna Á heimasíðu NET88 má finna upplýsingar um stofnandann, sem kölluð er Minh Châu en hét í raun Bich Tuyèn og var víetnömsk TikTok stjarna sem lést í febrúar 2023. Þar stendur einnig að NET88 hafi verið stofnað árið 2020 en engar sannanir finnast fyrir því og félagið hefur hvergi eldra starfsleyfi en síðan síðla árs 2023. Allar helstu upplýsingar á vefsíðunni virðast lygi. Mynd sem hún birti sjálf á samfélagsmiðlum skömmu áður en andlátið bar að. Buðu upp á hanaat og beinan kynlífsstraum Eins og áður segir fjarlægði NET88 ýmislegt efni af síðum sínum skömmu áður en styrktarsamningur við Crystal Palace var kynntur. Þar mátti áður finna auglýsingar fyrir beinar útsendingar af klámi og einn veðmálaflokkur síðunnar hét DÁ GÀ (ísl. Hanakjöt). Skjáskot af vefsíðu NET88 þann 9.maí síðastliðinn, mánuði áður en samningurinn við Crystal Palace var kynntur. Þar sést greinilega að boðið er upp á hanaat (DÁ GÀ).Skjáskot af vefsíðunni í dag þar sem DÁ GÀ hefur verið fjarlægt. Klám í beinu streymi mátti finna hjá NET88 í mars. Hvað er markmiðið? Eðlilegt er að velta því fyrir sér hvað Crystal Palace fær út úr því að bendla sig við svo vafasaman aðila, sem býður ekki enn upp á veðmál í Bretlandi og einblínir á víetnamskan markað þar sem veðmál eru ólögleg. Svarið við því virðist nokkuð augljóst, enginn býður betur og félagið græðir gríðarlegt fé. Fyrir NET88 snýst málið að sjálfsögðu um að auglýsa síðuna, og græða allvel, en fyrirtækið getur ekki auglýst sig í Víetnam enda veðmál ólögleg. Reglugerðir þar eru mun strangari en það sem þekkist til dæmis hér heima fyrir á Íslandi. Hart yrði tekið á því ef samfélagsmiðlastjörnur, útvarpsmenn og áhrifavaldar sæjust útbúnir NET88 græjum hvert sem þeir færu. Aðgengi að síðunni er hins vegar nokkuð auðvelt í gegnum einfalda VPN tengingu, vandamálið er bara að koma síðunni á framfæri. Það þarf því að leita krókaleiða og til þess virðist enska úrvalsdeildin tilfallin. Deildin nýtur gríðarlegra vinsælda í Víetnam og allir 380 leikir tímabilsins eru sýndir í beinni útsendingu. Löggjöf í kringum veðmálasíður í Bretlandi er með slakara móti, auðvelt er að stofna og fá starfsleyfi, og lítið eftirlit er með rekstrinum. Ætlunin virðist því ekki vera að laða að breskan kúnnahóp heldur nota félög ensku úrvalsdeildarinnar til að auglýsa ólöglega starfsemi í Suður-Asíu. Hvorki Wolverhampton Wanderers né Crystal Palace svöruðu fyrirspurnum Josimar um málið.
Enski boltinn Fjárhættuspil Mest lesið Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfubolti Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Fótbolti Dagmar ofuramma og heimsmethafi: „Maður springur bara út“ Sport Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Fótbolti Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Fótbolti Bætti skólamet pabba síns Körfubolti „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Handbolti Hrósa Ísaki fyrir þroska, hreinskilni og auðvitað að vera góður í fótbolta Sport Orri mætir Manchester United í Evrópudeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Guðlaugur um Rooney: „Hann missti traustið gagnvart mér“ Maddison var að sussa á Roy Keane Ekki unnið heimaleik í 105 daga þangað til Man United kom í heimsókn Enginn lagt upp fleiri mörk en Ederson Hetjan Maddison: Er hérna til að skapa færi og skora mörk Man City fór létt með Liverpool „Staða okkar í töflunni veldur mér áhyggjum“ Dagný og Hlín komu við sögu í sigrum West Ham og Leicester Maddison tryggði langþráðan heimasigur Diaz kom Liverpool í toppmál Armstrong til Man United frá PSG Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi „Mundum hverjir við erum“ Gott gengi Everton undir stjórn Moyes heldur áfram Sjá meira