Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ingibjargar Isaksen, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, um meðferð ákæruvalds í kynferðisbrotamálum.
Fyrsti liður fyrirspurnarinnar hljóðaði svo: Hversu mörg mál sem vörðuðu ætluð kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu á árunum 2020, 2021 og 2022? Svar óskast sundurliðað eftir þjóðerni og kyni meintra þolenda og gerenda.
Brotum fjölgaði um 102
Í svarinu segir að í töflu eitt, sem sjá má hér að neðan, megi sjá fjölda skráðra kynferðisbrota og fjölda mála á árunum 2020 til 2022. Miðað sé við dagsetningu tilkynningar en athuga beri að brot kann að hafa átt sér stað á öðrum tíma en tilkynnt er.

Í töflunni má sjá að á milli 2020 og 2022 fjölgaði tilkynntum kynferðisbrotum um 102 og tilkynntum málum um 109.
Erlendum körlum fjölgaði mikið en konum fækkaði
Í töflu 2 komi fram fjöldi einstaklinga með erlent ríkisfang sem grunaðir voru um kynferðisbrot á árunum 2020 til 2022 eftir kyni.

Í töflunni má sjá að á milli 2020 og 2022 fjölgaði karlmönnum með erlent ríkisfang sem grunaðir voru um kynferðisbrot um 48 milli ára. Það gerir um 92 prósent fjölgun á tveimur árum. Erlendum konum sem grunaðar eru um það sama fækkaði hins vegar úr sex í tvær.
Íslenskir karlmenn miklu fleiri en fjölgaði minna
Í töflu þrjú megi sjá fjölda einstaklinga með íslenskt ríkisfang sem grunaðir voru um kynferðisbrot á árunum 2020 til 2022 eftir kyni. Hafa beri í huga að í töflu eitt kemur fram heildarfjöldi brota en í töflum tvö og þrjú fjöldi grunaðra einstaklinga. Það sé ekki vitað í öllum málum hver hinn grunaði er og því sé heildarfjöldi í töflu eitt hærri en samtala fjölda grunaðra í töflum tvö og þrjú.

Í töflunni má sjá að íslenskum karlmönnum sem grunaðir voru um kynferðisbrot fjölgaði um 36 milli 2020 og 2022. Það gerir fjölgun upp á þrettán prósent. Fjöldi kvenna sem grunaður er um kynferðisbrot helst nokkuð stöðugur milli áranna þriggja.
Konur afgerandi meirihluti brotaþola
Í töflu fjögur megi sjá fjöldi brotaþola fyrir árin 2020 til 2022 eftir kyni og hvort ríkisfang var erlent. Það athugist að ekki séu aðgengilegar umbeðnar upplýsingar varðandi brotaþola í öllum málum á árunum 2020 til 2022 vegna þess með hvaða hætti skráning í kerfi lögreglu var framkvæmd.
