Landsmót var síðast haldið hér á landi fyrir átta árum síðan og segir mótstjórinn, Kolbrún Ósk Pétursdóttir því mikinn fiðring í fólki.
„Þannig við erum rosalega spennt. Fólk er byrjað að mæta og setja upp tjöld. Fullt af rigningu sem er stuð.“
Ekta veður fyrir skáta? „Já við höfum einmitt sagt að í ljósi þess að veðrið eigi að batna á sunnudaginn þá er fínt að prófa allan búnað þannig við erum alltaf tilbúin í alls konar.“
Enda eru skátar ávallt viðbúnir og upp til hópa jákvæðir. Gestir koma alls staðar frá, meðal annars frá Hong Kong, Taívan, Kanada, Bandaríkjunum og Evrópu.
Og hvað er gert á Landsmóti?
„Við erum með ótrúlega skemmtilega og ævintýralega dagskrá þar sem þau fara um allt svæðið og fá að skapa, prófa þrauta- og netatorg þar sem þau fá að fara í leiki, fara í vatnasafarí og ærslast aðeins um. Við erum með göngutorg þar sem þau fá að labba um umhverfið og svo erum við með samfélagstorg þar sem þau vinna samfélagsverkefni fyrir svæðið.“
Opnunarhátíðin fer fram á morgun og lýkur mótinu í næstu viku.
„Við erum ótrúlega spennt að taka á móti öllum skátunum sem eru búnir að undirbúa sig í marga mánuði og við erum ótrúlega spennt að byrja þetta mót, þetta er búinn að vera spennandi undirbúningur og verður gott að sjá þetta í framkvæmd.“