Rafíþróttir

Stærsta opna LAN-mót landsins fer fram í ágúst

Atli Már Guðfinsson skrifar
HRingurinn_2023

Stærsta opna LAN-mót landsins fer fram helgina 9. til 11. ágúst í Háskólanum í Reykjavík.

Tvíund, nemendafélag tölvunarfræðideildar í Háskólanum í Reykjavík, heldur þriggja daga rafíþróttamót að nafni HRingurinn í lok hvers sumars. Á síðustu mótum hafa mætt tæplega 400 manns og má því segja að HRingurinn sé stærsta opna LAN-mót á landinu.

Þátttaka í mótinu er skipt í LAN annars vegar og keppni hins vegar. Hægt verður að mæta og spila leiki með félögunum án þess að taka þátt í keppnum mótsins fyrir lægra verð en almennir keppendur greiða. Leikirnir sem keppt verður í þetta árið eru Counter-Strike 2, Rocket League, Valorant, Overwatch, League of Legends, Fortnite, Minecraft, Tekken 8, Street Fighter 6, Super Smash Bros Ultimate, Rivals of Aether og Guilty Gear Strive. Í verðlaunapottinum þetta árið eru 500.000 krónur.

Sjoppa verður á svæðinu sem er opin allan sólarhringinn sem og svefnaðstaða. 

Skráningu og dagskrá er hægt að nálgast á vefsíðu HRingsins, hringurinn.net 






×