Réttarhöld yfir Guðbjarti fóru fram fyrr í mánuðinum, að því er kemur fram í umfjöllun kanadíska miðilsins Burnaby now. Þar segir að eftir að Guðbjartur og meintur þolandi hans hefðu borið vitni hafi dómari sýknað Guðbjart af ákærunni að beiðni saksóknara.
Var það gert vegna ósamræmi í sönnunargögnum sem þolandi lagði fram. Delaram Jahani héraðsdómari sagði mikið innra og ytra ósamræmi í sönnunargögnum og vitnisburð konunnar ótrúverðugan.
Samkvæmt sönnunargögnum sem gefin voru upp í dómsal hafði konan sem tilkynnti um atvikið verið viðskiptavinur Guðbjarts í um tvö ár þegar atvikið á að hafa gerst. Nafns hennar er ekki getið í fréttum um málið.
Í umfjöllun Burnaby now segir að Guðbjartur hafi verið löggiltur sjúkranuddari í 32 ár. Hann hafi verið handtekinn og ákærður fyrir kynferðisbrot þann 25. nóvember 2022 eftir að lögreglunni í Surrey barst tilkynning um kynferðisbrot á PainPRO sjúkranuddstofunnni ellefu dögum fyrr.
Þann 8. desember sama ár sendu lögregluyfirvöld í Kanada út fréttatilkynningu þar sem fram kom að Guðbjarti hefði verið sleppt úr haldi undir ströngum skilyrðum. Honum væri óheimilt að veita meðferðarþjónustu af nokkru tagi, þar á meðal „hverskyns nuddmeðferðir eða líkamsmeðferðir á þeim sem skilgreina sig sem konu“.
Guðbjartur hafi farið að öllum reglum
Fyrir dómi sagði Guðbjartur frá atvikinu þannig að viðskiptavinur hans hafi hegðað sér kynferðislega í umræddum tíma, gripið í hönd hans og spurt hvort hann vildi „taka þátt“.
Hann hafi brugðist við með því að losa sig frá henni og ljúka tímanum skömmu eftir. Hann sagðist hafa gert nákvæmlega það sem honum var kennt í að gera í aðstæðum sem þessum. Að því loknu hafi hann séð til þess að allir áætlaðir tímar konunnar yrðu þurrkaðir út af tímaáætlun hans.
Aðspurður hvers vegna hann tilkynnti ekki atvikið til lögreglu á sínum tíma gaf Guðbjartur þær skýringar að hann hafi ekki vitað hvort gjörðir hennar heyrðu undir áreiti.
Sem fyrr segir var Guðbjartur sýknaður af ákærunni. Þrátt fyrir það er honum enn óheimilt að veita konum meðferðarþjónustu sína og að taka við bókunum í gegn um netið.