Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins, BBC. Þar segir að samband deilda í Evrópu, sem samanstendur af 39 deildum og 1130 félögum í 33 löndum, ætli að leggja inn kvörtun til að vernda velferð leikmanna Evrópu.
Ákvörðunin kemur í kjölfar mikillar pressu frá leikmannasamtökum og forráðamanna stærstu deilda Evrópu vegna fjölda leikja hjá stærstu liðum álfunnar.
#FIFPRO Europe and @EuropeanLeagues will jointly file a formal complaint to the @EU_Commission against FIFA regarding the international match calendar.
— FIFPRO (@FIFPRO) July 23, 2024
Our joint statement ⬇️ pic.twitter.com/qgLQaNvz6g
Leikmannsamtökin FIFpro segir í yfirlýsingu sinni að fjöldi leikja sé fallvaltur og ógni heilsu leikmanna. Þar segir einnig að ákvörðun FIFA að taka eigin keppnir og auglýsingatekjur sem þeim fylgja hafi skaðað bæði fjárhagslega hagsmuni landsdeilda (Premier League, La Liga, Serie A, Bundesliga og svo framvegis) sem og velferð leikmanna.
„Lagalega leiðin er nú eina rökrétta skrefið fyrir deildir Evrópu og leikmannasamtök til að vernda fótbolta, vistkerfi hans og vinnuafl,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Í maí á þessu ári neitaði FIFA því að Fifpro og samband landsdeilda heimsins, World League Association, hafi ekki verið með í ráðum þegar 32-liða heimsmeistaramót félagsliða var stofnað.
The top European leagues, including the Premier League, and the global players' union Fifpro will launch legal action against world governing body Fifa over its "abuse of dominance" in the game.#BBCFootball pic.twitter.com/WDvclPtNjI
— BBC Sport (@BBCSport) July 23, 2024
Alls taka 12 þjóðir frá Evrópu þátt í mótinu sem fram fer í Bandaríkjunum á næsta ári. Mótið er talsvert líkara því sem þekkist í landsliðafótbolta en það hefst þann 15. júní og endar 13. júlí.
FIFA segir forráðamenn deildanna vera hræsnara þar sem leikmenn liðanna ferðast heimshorna á milli á undirbúningstímabilinu. Þá segir talsmaður FIFA að núverandi dagatal sambandsins hafi verið samþykkt af ráði FIFA eftir samráð við alla aðila nefnda hér að ofan.