„Í ár eru 20 ár síðan ég hætti sem framkvæmdastjóri tóbaksvarnanefndar, af því það var slegið á puttana á mér þegar lýðheilsustöð var sett á laggirnar. Miðstýring tók völdin. Árin 1996-2004 voru eftirminnileg á margvíslegan hátt af því það náðist árangur en það var sótt að okkur úr ýmsum áttum – fyrir það eitt að segja sannleikann um tóbak. Ekki síst skaðsemi óbeinna reykinga,“ skrifar Þorgrímur í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook.
Ráðist á hann á skemmtistað
Þorgrímur rifjar upp árangurinn sem náðist á þessum árum. MR hafi til að mynda orðið fyrsti framhaldsskólinn með reyklaus menntaskólaböll, Háskólabíó bannað reykingar í húsnæðinu og stúkan á Laugardalsvelli varð reyklaus.
„En það voru margar skuggahliðar á því að vera í þessi starfi í átta ár. Mér var nokkrum sinnum hótað lífláti, það var ráðist á mig á skemmtistað eftir að ég sagði sannleikann um skaðsemi reykinga í sjónvarpsfréttum en nokkrir vina minna sneru árásarmanninn niður. Síminn hringdi stundum á nóttunni og einhver sagðist ætla nauðga konunni minni. Í kjölfarið fjarlægði ég númerið úr símaskránni.“
Þá segir Þorgrímur blaðamann á Helgarpóstinum hafa skrifað heilsíðugrein um hann á miður fallegan hátt og segir hann fréttamenn sem reyktu hafa sífellt reynt að gera lítið úr störfum nefndarinnar. Stjórnandi útsendingar á vegum RÚV hafi gert lítið úr þeirra störfum og tónlistarmaður í beinni útsendingu sagt að Þorgrímur bæri ábyrgð á dauða vinar hans sem ekki mátti reykja á spítala.
„En það sem var skondnast, var að nokkrir rithöfundar gerðu grín að mér í skáldsögum sínum. Fjölmargir héldu í alvörunni að ég starfaði að tóbaksvörnum af því ég hafði ekkert annað við líf mitt að gera. Ég var í launuðu starfi sem framkvæmdastjóri og þeir sem sátu í tóbaksvarnanefnd treystu mér. Frábært og framsýnt fólk. Mér vitrari maður á sviði forvarna hvatti mig til að hafa ætíð heilbrigða skynsemi að leiðarljósi og treysta innsæinu.“
Víða pottur brotinn í dag
Þorgrímur segir að ástæða þess að hann rifji þetta upp nú sé sú að víða sé pottur brotinn í samfélaginu í dag. Allt sé hægt þegar hugrekki og dugnaður sé hafður að leiðarljósi.
„Við þurfum á leiðtogum að halda sem standa í lappirnar þótt 0,02 prósent þjóðarinnar reiti hár sitt og hrópi hátt opinberlega af minnsta tilefni. Þá þegir meirihlutinn, því miður, svo hann lendi ekki í hakkavél hinna örfáu.“