Eitt eftirminnilegasta augnablik síðustu Ólympíuleika var þegar Tamberi og Mutaz Barshim frá Katar deildu gullverðlaunum í hástökki.
Tamberi á að hefja titilvörnina á miðvikudaginn en einhver bið verður á því að hann fari til Parísar þar sem hann var lagður inn á spítala á laugardaginn.
„Ótrúlegt. Þetta getur ekki verið satt. Í gær [í fyrradag] fann ég mikinn verk í síðunni,“ skrifaði Tamberi á Instagram. Hann sagði að hann væri líklega með nýrnastein.
„Og núna, þremur dögum fyrir viðburð sem ég fórnaði öllu fyrir, ligg ég hjálpavana uppi í rúmi með 38,8 stiga hita.“
Undankeppnin í hástökkinu fer fram á miðvikudaginn en úrslitin á sunnudaginn.