Hulda Clara kórónaði frábært sumar með sigri í Hvaleyrarbikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2024 09:00 Hulda Clara Gestsdóttir fagnar sigri í Hvaleyrarbikarnum í gær. GSÍmyndir/[email protected] Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur fögnuðu sigri í Hvaleyrarbikarnum í golfi um helgina en mótið var lokamótið á stigamótaröð GSÍ 2024.
Hulda Clara kórónaði þar með glæsilegt sumar hjá sér því hún varð einnig Íslandsmeistari í síðasta mánuði og sigurinn í Hvaleyrarbikarnum tryggði henni einnig stigameistaratitilinn. Hún var einnig að vinna Hvaleyrarbikarinn annað árið í röð. Hulda lék hringina þrjá á 76, 73 og 76 höggum. Hún tók forystuna á öðrum keppnisdegi og sigraði með fimm högga mun þegar uppi var staðið. Mosfellingarnir Eva Kristinsdóttir og Berglind Erla Baldursdóttir komu næstar. Berglind Björnsdóttir úr GR fór holu í höggi í mótinu. Sló hún draumahöggið á tólftu holunni á öðrum keppnisdegi. Tómas byrjaði mótið frábærlega þegar hann setti vallarmet á fyrsta degi með því að spila á 65 höggum. Forskotið minnkaði þegar leið á mótið en Tómas hélt velli og sigraði með eins höggs mund. Hann lék samtals á fimm höggum undir pari og hringina þrjá á 65, 71 og 75 höggum. Breki Gunnarsson Arndal úr GKG og Jóhann Frank Halldórsson úr GR komu næstir. Stigameistari karla varð Aron Snær Júlíusson úr GKG sem einnig er Íslandsmeistari og varð hann stigameistari í annað sinn. Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara Gestsdóttir, bæði úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, urðu stigameistarar GSÍ 2024.gsímyndir/[email protected]
Golf Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Gunnlaugur í besta sæti Íslendings Lék Lo Romero völlinn á 58 höggum og sjáðu hann enda á svakalegu höggi Vann undrabarnið og braut blað í íslenskri golfsögu Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði Allt jafnt fyrir lokadaginn Sögufrægur golfvöllur í hættu vegna eldanna í Los Angeles Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunnlaugur nýtur sín meðal þeirra bestu Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Sjá meira