McIlroy byrjaði á að fá fugl á 16. holu á meðan að Spaun fékk par. Á 17. holu fór svo allt í vitleysu hjá Spaun.
Bandaríkjamaðurinn átti þá teighögg út í vatn, með 8-járni. Hann virtist óöruggur og leit á kylfu McIlroy áður en hann valdi sér kylfu, ræddi svo við kylfusvein sinn og skipti um kylfu áður en hann sló svo yfir flötina og út í vatn.
Splash for Spaun on 17 💔 pic.twitter.com/Rdj0eYu6nM
— PGA TOUR (@PGATOUR) March 17, 2025
Spaun endaði á að fara brautina á +3 höggum svo að þó að McIlroy hefði fengið skolla þá var hann með þriggja högga forskot fyrir lokaholu framlengingarinnar. McIlroy tryggði sér svo sigur með því að spila hana á höggi yfir pari og lék því brautirnar þrjár samtals á +1 höggi en það dugði og rúmlega það.
Þetta er í annað sinn sem að McIlroy stendur uppi sem sigurvegari á Sawgrass vellinum því hann vann einnig fyrir sex árum.
„Mér finnst ég vera mun heilsteyptari kylfingur en ég var fyrir nokkrum árum,“ sagði McIlroy sigurreifur eftir framlenginguna í dag. Hann var nálægt því að landa sigri í gær en Spaun var sjóðheitur eftir hlé sem var gert vegna þrumuveðurs og náði að tryggja sér framlengingu.
Spaun sá ekki eftir neinu þegar hann var spurður út í teighögg sitt á 17. holu í dag.
„Ég hitti boltann nánast of vel. Ég átti frábært högg. Þetta féll bara ekki með mér núna,“ sagði Spaun.