Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Fagurskreytt brúðarterta
Tónlistarmaðurinn og glimmer kóngurinn Páll Óskar Hjálmtýsson og eiginmaður hans Edgar Antonio Lucena Angarita voru saman efst á brúðkaupstertu í Gleðigöngunni um helgina. Páll Óskar giftist Edgari Antonio í mars á þessu ári og kveðst aldrei hafa verið hamingjusamari.
Litrík fjölskylda
Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut, stofnendur Hinseginleikans, fögnuðu fjölbreytileikanum og ástinni með fjölskyldunni um helgina.
Ástin á Pride
Listakonan Íris Tanja Flygenring birti mynd af sér og unnustu sinni, Elínu Eyþórsdóttur, í tilefni dagsins.
Áhrifavaldurinn og ljósmyndarinn Helgi Ómarsson fagnaði fjölbreytileikanum með unnusta sínum Pétri Sveinssyni.
Fyrsta gleðigangan
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra birti mynd af sér úr Gleðigöngunni árið 2016.
Lítur um öxl á Dalvík
Tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Friðrik Ómar Hjörleifsson birti mynd af sér við æskuheimili sitt á Dalvík í tilefni hinsegindaga. Hann rifjar upp í einlægri færslu hvernig það var að alast upp í bænum sem ungur samkynhneigður maður og segist hafa líklega komið fyrr út úr skápnum hefði hann búið í borginni.
„Það hefur að langmestu leyti verið frábært að vera hommi. Ég var orðinn 16 ára þegar ég vissi það en kom í raun ekki út af alvöru fyrr en 10 árum síðar. Ég var bara ekki tilbúinn. Ég hefði sennilega komið fyrr út ef ég hefði búið í borginni. Hver veit?
En umfram allt vil ég að þið vitið að ég er eins og ég er og þið eruð það líka. Við erum öll hinsegin og alls konar en fyrst og fremst manneskjur. Við eigum ekki bara að hvíla í friði þegar við erum dauð heldur fá að hvíla í friði í okkur sjálfum meðan við erum á lífi, bera höfuðið hátt, vera hugrökk og fylgja hjartanu.“
Lúkkið upp á tíu
Gummi kíró klæddi sig upp í tilefni dagisns.
Bleikt skvísuafmæli
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir fagnaði afmæli sínu með bleiku þema.
Vinkonur Sunnevu og áhrifavaldarnir Jóhanna Helga, Ástrós Trausta, Magnea Björg og Hildur Sif voru meðal gesta sem fögnuðu deginum með henni.
Tróð upp í heimabyggð
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson tróð upp á tónlistarhátíðinni Hamingjan við hafið í Þorláksshöfn auk þess sem hann fagnaði fjölbreytileikanum með fjölskyldunni.
Töff í sólinni
Kristín Pétursdóttir áhrifavaldur var gay for a day.
Brúðkaupsafmæli
Tara Sif Birgisdóttir dansari og áhrifavaldur og eiginmaður hennar Elfar Elí Schweitz fögnuðu eins árs brúðkaupsafmæli sínu um helgina.
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti fagnaði tveggja ára brúðkaupafmæli hans og eiginkonu sinnar Jovönu Miljevic í vikunni.
Tískuvikan í Kaupmannahöfn
Hin íslenska Þóra Valdimarsdóttir, stofnandi Rotate, fagnaði vel heppnaðri tískusýningu en meðal gesta var engin önnur en Pamela Anderson.
Sigríður Margrét markaðsfræðingur og áhrifavaldur fylgdist með nýjustu trendunum á tískuvikunni í Kaupmannahöfn.
Brúðkaup í borginni
Birgitta Líf Björnsdóttir markaðsstjóri World Class og raunveruleikastjarna fagnaði ástinni í brúðkaupi um helgin þar sem hún klæddist fallegum ljósbláum kjól.
Markaðsstjórinn og áhrifavaldurinn Erna Hrund fagnaði ástinni í brúðkaupi í svörtum kjól og fagurgrænum flauelsskóm og skemmti sér vel.
Rautt og seiðandi
Söngkonan Bríet birt mynd af sér í rauðum sokkabuxum.
Fullt út úr dyrum
Grammy verðlaunahafinn og ein frægasta söngkona okkar Íslendinga Laufey Lín birti myndir úr tónleikaferðalaginu Bewitched þar sem hún kom fram í tónleikahöllinni Hollywood Bowl í Los Angeles.