Pétur Jökull er ákærður fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins sumarið 2022. Efnin voru falin í timbursendingu sem barst til Hollands frá Brasilíu og átti að senda áfram til Íslands.
Fjórir menn voru í kjölfarið dæmdir vegna málsins og voru dómarnir á bilinu fimm til níu ára fangelsi. Ljóst er að fleiri komu að skipulagningu innflutnings og telur lögregla að Pétur Jökull geti verið huldumaður sem hinir sakborningarnir nefndu Harry eða Nonna í vitnisburði sínum.
Aldrei rætt við Pétur Jökul í tengslum við málið
Pétur Jökull sagðist við aðalmeðferð í morgun aðeins kannast við Birgi af þeim fjórum sem hlutu dóm í málinu. Þeir hefðu kynnst á Hverfisgötu þar sem báðir hefðu haft aðgang að húsnæði um tíma.
„Ég er eiginlega ekki til í að samþykkja að vera bundinn vitnaskyldu. Ég hefði ekki þurft að tjá mig hefðu allir verið ákærðir samtímis,“ sagði Birgir fyrir dómi.
Hann sagðist ekki sjá muninn á því og að koma núna aftur fyrir dóm. Hann vildi þó koma því á framfæri að þótt hann kannaðist við Pétur Jökul frá því fyrir löngu síðan á Hverfisgötu þá hefði hann aldrei rætt um hann í tengslum við þetta mál.
„Búið gagnvart mér“
Birgir vildi ekki svara þeirri spurningu saksóknara hvort hann hefði einhvern tímann verið kallaður B. Eitthvað sem saksóknari spurði Pétur Jökul líka út í í morgun og sömuleiðis Pál Jónsson timbursala, sem afplánar dóm í málinu.
Hann ítrekaði svo að afstaða hans að tjá sig ekki um málið væri sú sama og þegar hann var boðaður til skýrslutöku.
„Ég er langt kominn með afplánun. Þetta er bara búið gagnvart mér. Það er búið að dæma mig á tveimur dómsstigum.“
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari sagði þá þýðingarlítið að bera upp frekari spurningar. Þá áréttaði Daði Kristjánsson dómari að almennt væri það þannig að vitni sem kæmu fyrir dóm ættu að svara spurningum.
„Já, en hvernig er hægt að taka þennan rétt af mér sem sakborningur í þessu máli. Það er gróft að svifta mig þeim rétti.“