Óvænt áhlaup úkraínskra hersveita á Kúrsk-hérað í síðustu viku kom stjórnvöldum í Kreml í opna skjöldu. Harðir bardagar hafa nú geisað þar í hátt í viku án þess að Rússum hafi tekist að stökkva Úkraínumönnunum á flótta.
Pútín sagði innrásina virðast vera tilraun stjórnvalda í Kænugarði til þess að ná betri samningsstöðu fyrir mögulegar friðarviðræður í framtíðinni og tefja sókn Rússa í austanverðri Úkraínu.
Fyrir Úkraínumönnum vaki einnig að valda óróa innan Rússlands en þar hefði þeim mistekist. Hélt forsetinn því fram að sjálfboðaliðum í herinn hefði fjölgað vegna innrásarinnar.
„Óvinurinn fær vafalaust verðug viðbrögð og það er enginn vafi um að við náum öllum okkar markmiðum,“ sagði Pútín á fundi með yfirmönnum hersins og þjóðaröryggis í dag.
Breska ríkisútvarpið BBC segir að þrátt fyrir kokhreystið hafi Pútín virst önugur á fundinum sem var sýndur í rússnesku sjónvarpi. Þegar Alexei Smirnov, héraðsstjóri í Kúrsk hafi talað um hversu djúpt inn í héraðið Úkraínumenn hefðu náð stoppaði Pútín hann og bað hann um að tala frekar um hvernig verið væri að aðstoða héraðsbúa.
Þúsundir á flótta
Áður en Pútín stöðvaði hann sagði Smirnov að Úkraínumenn hefðu nú 28 þorp á valdi sínu og að um 121.000 íbúar héraðsins hefðu þurft að yfirgefa heimili sín. Flytja þyrfti um 59.000 manns til viðbótar í burtu. Hélt héraðsstjórinn því fram að tólf óbreyttir borgarar hefðu fallið til þessa að 121 særst, þar á meðal tíu börn.
Erfitt reyndist að finna allar úkraínskar herdeildir sem fara nú um Kúrsk. Sagði Smirnov að sumir úkraínskir hermennn notuðu fölsk rússnesk skilríki.
Í nágrannahéraðinu Belgorod var einnig tilkynnt um rýmingar nærri úkraínsku landamærunum í dag, að sögn AP-fréttastofunnar.
Mikil leynd hefur hvílt yfir aðgerðum og markmiðum Úkraínumanna í Kúrsk. Óljóst er hvort að fyrir þeim vaki að halda landsvæðum þar eða gera leifturárásir þaðan. Úkraínumenn eru enn sagðir halda hluta bæjarsins Sudzha þar sem mikilvæg millistöð fyrir jarðgasleiðslu til Evrópu liggur.
AP hefur eftir Pasi Paroinen frá finnsku samtökunum Black Bird Group sem fylgjast með stríðinu að róðurinn hjá Úkraínumönnum fari nú að þyngjast í Kúrsk þegar liðsauki rússneskra varaliðsmanna berst þangað.
Gordon Corera, sérfræðingur BBC í öryggismálum, segir að þó að nær ómögulegt sé fyrir Úkraínumenn að halda Kúrsk í ljósi aflsmunar þá gæti innrásin leitt til þess að Rússar telji sig knúna til þess að færa herdeildir til rússneskra landamærahéraða til að fyrirbyggja frekari atlögur Úkraínumanna.