Það fór vel á með forsetahjónunum, helstu leikurum myndarinnar og sonum Örnu. Mummi Lú
Kvikmyndin Ljósvíkingar eftir Snævar Sölvason var frumsýnd í Smárabíó í gær. Þangað lögðu rúmlega átta hundruð manns leið sína til að berja myndina augum í þremur sölum.
Þar á meðal var forseti Íslands Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar Björn Skúlason. Vel fór á með gestum og var mikið hlegið og grátið. Aðstandendur myndarinnar segja að fólk hafi verið himinlifandi að sýningu lokinni.
Ljósvíkingar fjallar um æskuvinina Hjalta og Björn sem reka fiskveitingastað í sínum heimabæ yfir sumartímann. Þá dreymir um að geta haft opið allt árið um kring og þegar óvænt tækifæri þess efnis bankar upp á, tilkynnir Björn vini sínum að hún sé trans kona og muni framvegis heita Birna.
Þessar breytingar reyna á vináttuna og þurfa þau bæði að horfast í augu við lífið á nýjan hátt til þess að bjarga því sem mestu máli skiptir. Með helstu hlutverk fara Björn Jörundur Friðbjörnsson, Arna Magnea Danks, Vigdís Hafliðadóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Helgi Björnsson.
Myndin er að langstærstum hluta tekin á Ísafirði þar sem persónulegar sögur fléttast inn í ferðamannaflaum og komu skemmtiskipa til bæjarins.
Snævar hélt ræðu fyrir sýningu.Mummi LúArna Magnea Danks, Björn Einar Danks og Engilbert Aron Danks.Mummi LúBjörn Jörundur Friðbjörnsson, Helgi Björnsson og Daníel Ágúst Haraldsson.Mummi LúArnór Sigurgeir Þrastarson, Magnús Jóhann Ragnarsson og Sólveg Klara Ragnarsdóttir.Mummi LúJón Ólafsson, Ingvar Þórðarson og Einar Bárðarson.Mummi LúBjörn Jörundur Friðbjörnsson og Magdalena dóttir hans.Mummi LúEiríkur Bergmann og Aino Freyja.Mummi LúSpessi, Rannveig Rist og Jón Heiðar.Mummi LúJakob Bjarnar og Jóhanna Steina Matthíasdóttir.Mummi LúViktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm.Mummi LúVigdís Jóhannsdóttir, Birgir Tryggvason, Hjálmar Örn Jóhannsson og Ljósbrá Logadóttir.Mummi LúGuðrún og Reynir.Mummi LúBirna Rún, Jakob Fríman og Katrín Borg Jakobsdóttir.Mummi LúSiggi Hall.Mummi LúHelgi Björnsson, Birgit Guðjónsdóttir og Vilborg Halldórsdóttir.Mummi LúBrynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly.Mummi LúEinar Þór Jónsson og Arna Magnea Danks.Mummi LúKrummi í Mínus, Björn Jörundur, Snævar Sölvason og Helgi Björnsson.Mummi Lú