Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður [6]
Öruggur í flestum aðgerðum sínum en fær á sig þrjú mörk. Vel hægt að setja spurningamerki við staðsetningar hans í fyrstu tveimur mörkum Tyrklands.
Guðlaugur Victor Pálsson, hægri bakvörður [6]
Skoraði mark Íslands. Gekk ekkert frábærlega varnarlega, staðsetningar ekki til fyrirmyndar í upphafi og svo alltof langt frá sínum manni í öðru marki heimamanna. Einkunnin væri lægri ef ekki væri fyrir markið.
Hjörtur Hermannsson, miðvörður [5]
Átti á köflum í veseni, rétt eins og aðrir varnarmenn Íslands. Hefði mögulega mátt setja meiri pressu í öðru marki Tyrklands og í brasi í þriðja markinu.
Daníel Leó Grétarsson, miðvörður [5]
Hefði mátt vera fljótari að bregðast við í fyrra marki Tyrklands. Klaufalegt brot undir lok fyrri hálfleiks. Vandræði á köflum, líkt og hjá öðrum varnarmönnum Íslands.
Kolbeinn Birgir Finnsson, vinstri bakvörður [5]
Átti oft í vandræðum þar sem Tyrkir keyrðu mikið á hann. Hefði mátt nýta fyrirgjafastöður betur. Sást að hann hefur ekki spilað mikið sem bakvörður í fjögurra manna varnarlínu.
Stefán Teitur Þórðarsson, miðjumaður [6] - Maður leiksins
Erfiður leikur gegn öflugri miðju Tyrklands en Stefán Teitur skilaði sínu. Gerði oft vel að hefja spil og losa sig undan pressu. Búinn að bóka sæti sitt í byrjunarliðinu virðist vera.
Jóhann Berg Guðmundsson, miðjumaður [5]
Hefur oft verið betri og fann sig illa. Missti boltann í markinu og seinn til baka. Lagði upp mark Guðlaugs. Stoðsending hækkaði einkunn hans.
Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður [3]
Afmælisbarn gærdagsins sást ekki mikið. Virkaði heldur týndur þar sem Ísland var lítið með boltann. Tekinn af velli eftir klukkustund.
Mikael Neville Anderson, hægri kantmaður [5]
Kraftur í honum og hefði ef til vill mátt fá fleiri aukaspyrnur frá dómara leiksins. Fékk litla þjónustu líkt og aðrir sóknarþenkjandi leikmenn Íslands. Fór af velli í hálfleik.
Jón Dagur Þorsteinsson, vinstri kantmaður [5]
Erum vön því að sjá Jón Dag láta finna fyrir sér, keyra á menn þegar tækifæri gefst og almennt vera einn besta mann liðsins. Ekki var mikið af slíkum tækifærum og hann tekinn af velli eftir klukkustund.
Andri Lucas Guðjohnsen, framherji [3]
Hljóp mikið þegar Ísland varðist. Slakur sóknarlega. Ekki mikil nærvera og gekk illa að halda í bolta og finna liðsfélaga. Lét varnarmenn Tyrkja ýta sér full auðveldlega af boltanum, ítrekað.
Varamenn
Willum Þór Willumsson [5] kom inn á fyrir Mikael Anderson á 46. mínútu.
Hafði ekki mikil áhrif á leikinn eftir að hann kom inn á. Komst í lítinn takt.
Valgeir Lunddal Friðriksson [5] kom inn á fyrir Guðlaug Victor Pálsson á 59. mínútu.
Töluvert meiri sóknarógn af honum heldur enn Guðlaugi.
Orri Steinn Óskarsson [5] kom inn á fyrir Gylfa Þór Sigurðsson á 59. mínútu.
Tengdi betur við liðsfélaga sína heldur en Andri Lucas og Gylfi Þór. Komst almennt ekkert í mikinn takt við leikinn frekar en aðrir varamenn Íslands. Vantaði stundum að skila sér á enda fyrirgjafa.
Arnór Ingvi Traustason [5] kom inn á fyrir Jón Dag Þorsteinsson á 59. mínútu.
Hann og Orri náðu að tengja sendingar við liðsfélaga sína, sem ekki sást mikið af áður en þeirra krafta naut við. Sama og með aðra varamenn. Missti svo boltann í aðdraganda þriðja marksins.