Rafíþróttir

Klu­tz réði ekkert við Gold­Dig­gers

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Hart var barist og það gekk á ýmsu í 2. umferð Míludeildarinnar í Valorant.
Hart var barist og það gekk á ýmsu í 2. umferð Míludeildarinnar í Valorant.

Bar­áttan var hörð og ýmis­legt gekk á í 2. um­ferð Mílu­deildarinnar í Val­orant á föstu­dags­kvöld þar sem sann­færandi sigur Gold­Dig­gers á Klu­tz kom lýs­endunum Mist Reyk­dal Magnús­dóttur og Daníel Mána Óskars­syni einna helst á ó­vart.

Lokatölur í viðureign GoldDiggers og Klutz voru 13-6 og eins og Daníel benti á, máttu ríkjandi meistarar kvenna þannig lúta í lægra haldi fyrir liði skipuðu leikmönnum sem hafa ekki spilað saman nema í um það bil eitt ár.

Mist bætti við að þetta hefði verið frábær leikur hjá GoldDiggers sem spiluðu mjög vel og ætluðu greinilega ekki að láta meistarana í Klutz eiga neitt inni hjá sér.

Úrslit 2. umferðar:

ControllerZ - Guardian Grýlurnar 13-2

Venus- Höttur 13-4

Jötunn Valkyrjur - Þór 13-4

Klutz - GoldDiggers 6-13

Þriðja umferð Míludeildarinnar í Valorant fer fram föstudaginn 20. september og þá ætla Mist og Daníel meðal annars að lýsa leik Jötunn Valkyrja og Hattar og ekki annað á þeim að heyra að þau biðu spennt eftir að fá loksins að sjá Valkyrjurnar í leik enda um gamla liðið hennar Mistar að ræða, auk þess sem það trónir á toppi deildarinnar eins og staðan er núna.

Míludeildin í ár er stærsta Val­orant-mót sem hefur verið haldið á Íslandi hingað til og eins og Mist hefur bent á „algert met“ og eftir að hafa vanist því að hafa séð þrjú til fjögur lið keppa sé „ alveg klikkað,“ að þau séu nú átta.

Þá hefur veglegt verðlaunaféð, ein og hálf milljón króna, að vonum vakið mikla athygli: „Peningalega er þetta næst stærst og það sem er örugglega mest töff við þetta er að þetta er örugglega í fyrsta skipti sem rafíþróttadeild, önnur en Counter Strike, er með yfir milljón í verðlaunafé,“ segir Daníel og bendir á að ekki þurfi að hafa mörg orð um hversu jákvætt þetta er fyrir íþróttir kvenna.

Daníel Máni Óskarsson og Mist Reykdal Magnúsdóttir greindu stöðuna og lýstu leikjun í annarri umferð Míludeildarinnar í beinni.



Viðureignirnar í 3. deild verða eftirfarandi:

Jötunn Valkyrjur - Höttur

ControllerZ - Klutz

Þór - Guardian Grýlurnar

Venus - GoldDiggers

Staðan í Míludeildinni eftir tvær umferðir.

Tengdar fréttir

Met­þátt­taka í kvenna­deildinni í Val­orant

„Þetta er stærsta Val­orant-mót sem við höfum haldið hingað til og náttúr­lega eina kvenna- og kyn­segin­mótið,“ segir Daníel Máni Óskars­son, móta­stjóri í Mílu­deildarinnar í Val­orant. Verð­launa­féð nemur einni og hálfri milljón en hann bendir á að hingað til hafi engin raf­í­þrótta­deild, önnur en Coun­ter Stri­ke, verið með yfir milljón í verð­launa­fé.






×