Ekki var að sjá rándýrseðlið í liði Jaguars er það tapaði hressilega, 47-10, fyrir Buffalo Bills í NFL-deildinni í gærkvöld. Gæðaleysi er eitt en helsta gagnrýnin hefur beinst að andleysinu, kraftleysinu og dugleysinu sem einkenndi bæði sókn og vörn.
Um er að ræða sjötta stærsta tap í sögu félagsins og hefur það tapað öllum þremur leikjum sínum í upphafi yfirstandandi leiktíðar. Þá vann liðið aðeins einn af síðustu sex leikjum sínum í fyrra og sá sigur kom gegn arfaslöku liði Carolina Panthers.
Menn orðlausir og hvers kyns breytingar á borðinu
Varnarmaðurinn Josh Hines-Allen var orðlaus eftir leik gærkvöldsins og sagði Jacksonville hreinlega hafa verið yfirspilað í bæði vörn og sókn. „Það er ekkert hægt að sykurhúða þetta,“ sagði hann eftir leik.
„Ég er bara í sjokki, þetta var rugl,“ bætti hann við.

Vandræði Jaguars eru þá komin á það stig að Doug Pederson, þjálfari liðsins, sem er sagður í afar heitu sæti, segir engan öruggan um starf sitt, eða byrjunarliðssæti. Ekki einu sinni leikstjórnandinn rándýri, Trevor Lawrence.
„Það þurfa að verða breytingar. Hvort sem það er sóknarleikurinn, starfsfólk, allt er á borðinu,“ sagði öskuillur Pederson sem útilokaði ekki að bekkja Lawrence, sem á að vera stjarna liðsins, en lék líkt og aðrir leikmenn þess töluvert yfir pari vallar í gær.
Eigandinn foxillur
Eigandi liðsins, Shahid Khan, er ekki sagður mikið hressari en þjálfarinn og verður áhugavert að sjá hvort hann sjái sér hreinlega vænlegastan kost í stöðunni að skipta Pederson út.

Khan er almennt álitinn prúðlyndismaður með mikið jafnaðargeð en samkvæmt bandarískum miðlum misbauð honum algjörlega er Jacksonville þurfti að þola 37 stiga tap.
Heimildamaður nátengdur Khan segir hann hafa verið „reiðari en ég hef nokkurn tíma séð Shad. Hann er venjulega hlédrægur, indæll heiðursmaður. En ekki í kvöld.“
Næsti leikur Jacksonville Jaguars er gegn Houston Texans á sunnudaginn kemur. Houston-liðið hefur spilað vel síðustu misseri en tapaði óvænt stórt, 34-7, fyrir Minnesota Vikings síðustu helgi. Bæði lið hafa því eitthvað að sanna er þau mætast seinni partinn á sunnudag.