Dökkgrá hurð með frönskum gluggum leiðir inn í rúmgott stofurými með aukinni lofthæð og viðarparketi á gólfi. Heimilið ber þess merki að vera í húsi með einstökum arkitektúr, þar sem veglegir gólflistar, bogadregið loft og stæðilegir hurðarkarmar skera sig úr og fanga augað.
Fáguð hönnun og heillandi byggingarstíll
Heimilið er innréttað á hlýlegan máta þar sem rómantískur stíll mætir klassískri hönnun sem stendur tímans tönn.
Í stofunni má sjá fallegan svartan flygil ásamt bólstruðum leðurbekk sem stela senunni. Ofan á flyglinum má sjá lampann, Flower-pot, í litnum dark plum hannaðan af Verner Panton árið 1968.

Hinn klassíska Wassily stól er einnig að finna á heimili Laufeyjar. Stóllinn er eftir Marcel Breuer og var hannaður fyrst 1925. Stóllinn tekur sig vel út í stofunni og gefur rýminu töffaralegt yfirbragð til móts við gamlan byggingarstíl.

Fyrir miðju er hvítur stór sófi og hliðarborð frá þýska framleiðandum ClassiCon. Fyrirtækið einskorðar sig við að framleiða hágæða húsgögn í bæði nútímalegum og klassískum stíl. Borðið er hannað af Eileen Grey árið 1927 og er hæð þess stillanlegt.

Úr stofunni er gengið inn um bogadregið hurðarop í borðstofuna. Þar sem má sjá veglegt viðarborð og hina klassísku stóla, Y-chair, í sápuborinni eik. Stólarnir eru hannaðir af danska hönnuðinum Hans J. Wegner árið 1949.
Fyrir ofan borðið hangir stærðarinnar ljósakróna sem gefur heildarmyndinni ákveðinn lúxusbrag.
