Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um þá fáheyrðu stöðu sem uppi er í vegamálum að stærri útboð hafa legið niðri í rúmt ár. Endurnýjun Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði er meðal þeirra verkefna sem liggja í salti eftir að öll stór útboð hjá Vegagerðinni voru stöðvuð í fyrrahaust. Hornafjarðarfljót hafði sogað til sín allt fjármagn eftir að áform um einkafjármögnun mislukkuðust.

Þetta var ein ástæða þess að stjórnarmeirihlutinn á Alþingi treysti sér ekki til að afgreiða samgönguáætlun síðastliðið vor. En núna boðar innviðaráðherra að áætlunin verði lögð fram í október.
„Við erum komin með frekari forsendur þarna inn, samgöngusáttmálann á höfuðborgarsvæðinu, og við vitum betur svona.. - við getum horft inn í kristalskúluna sem er orðin ögn tærari fyrir framtíðina. Og það verður betra,“ segir Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra.

Og hún kemur með sínar áherslur.
„Ég hef væntingar líka til þess að við getum líka lyft almenningssamgöngum hærra heldur en við höfum verið að gera.
Þannig að þetta verður á áætlun í okóber,“ segir Svandís.
Á Vestfjörðum hafa sveitarfélög sem og samtök fyrirtækja lýst óánægju sinni, en auk Dynjandisheiðar hefur lokaáfangi vegagerðar um Gufudalssveit frestast. Á Norðausturlandi má nefna að vegagerð um Brekknaheiði var sett á bið.

En getur fjármálaráðherra gefið fyrirheit um að stór vegagerðarútboð fari að hefjast á ný?
„Við höfum verið að vinna að svona ákveðnum þáttum er lutu að því að þingið gat ekki lokið vinnunni í vor. Höfuðborgarsáttmálinn liggur fyrir. Við erum að vinna að svona öðrum þáttum.
Þannig að: Já, ég er mjög bjartsýnn á það að þau útboð geti farið fram sem til stóð að fari fram, þó að þeim hafi seinkað,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra.

Hann nefnir engar tímasetningar. Úr þessu er þó hverfandi von um að nýjar framkvæmdir hefjist í ár.
„Það er reyndar, þau verkefni sem hefðu verið boðin út í sumar hefðu nú kannski ekki farið af fullum krafti fram fyrr en á næsta ári. Þannig að tíminn er auðvitað enn ekki farinn. En það er mikilvægt að menn sjái svona fyrirsjáanleika í útboðunum,“ segir Sigurður Ingi.
Innviðaráðherra segir blasa við að samfélagið og þingheimur vilji gera betur.
„Og ég hef væntingar til þess að við getum bætt í frá fjárlagafrumvarpinu og fram að næstu umræðu fjárlaga hvað varðar samgönguinnviði. Við einfaldlega þurfum verulega á því að halda,“ segir Svandís.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: