Vesturbyggð
1 2 3 4 5 6 … 12 ›
MAST rannsakar gat á sjókví Arnarlax í Patreksfirði Matvælastofnun hefur til rannsóknar gat á nótarpoka í sjókví Arnarlax við Vatnseyri í Patreksfirði. Gat á nótunni uppgötvaðist síðasta fimmtudag, 20. Mars, og var lokað samdægurs. Matvælastofnun rannsakar meðal annars hvort strok hafi átt sér stað og hvort Arnarlax hafi virkjað og farið eftir eigin verklagsreglum og viðbragðsáætlunum. Innlent 24.3.2025 14:23
Bjargaði sér í Afríku þegar Vestfjarðaflugið gekk ekki Vestfirska Flugfélagið Ernir á Ísafirði var komið með nítján sæta Twin Otter-vél þegar best gekk. En þegar fjaraði undan Vestfjarðafluginu voru það verkefni í Afríku sem gáfu Herði Guðmundssyni færi á því að halda flugvélinni. Innlent 24.3.2025 14:14
Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit Vegagerðin hefur boðið út smíði tveggja steyptra brúa í Gufudalssveit, yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Gert er ráð fyrir verklokum eftir eitt og hálft ár, haustið 2026. Innlent 14.3.2025 13:00
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11.3.2025 23:17
Níu af þrettán styrkjum fara í kjördæmi ráðherra Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 140 milljónum til þrettán verkefna á landsbyggðinni til að efla byggðir landsins. Níu af verkefnunum þrettán eru í kjördæmi ráðherrans. Innlent 11.3.2025 14:35
Verksamningur undirritaður um þriðja áfanga Dynjandisheiðar Fulltrúar Vegagerðarinnar og Borgarverks skrifuðu undir verksamning vegna þriðja og síðasta áfanga Dynjandisheiðar í dag. Áætluð verklok eru haustið 2026. Innlent 4.3.2025 17:00
Segja ekki um neitt „tilfinningaklám“ að ræða Tíu bæjar- og sveitarstjórar mótmæla lokun flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli og krefjast þess að hún verði opnuð strax auk þess að tré í Öskjuhlíð, sem skyggja á flugbrautina, verði felld. Þau segja að ekki sé um neitt „tilfinningaklám“ að ræða, líkt og Helga Vala Helgadóttir lögmaður sagði í Silfrinu á RÚV. Innlent 19.2.2025 20:58
Reykjavík er höfuðborg okkar allra Við undirrituð, bæjar- og sveitarstjórar á Íslandi, mótmælum öll lokun annarrar af tveimur flugbrautum Reykjavíkurflugvallar með tilheyrandi skerðingu á þjónustu og ógn við innanlandsflug sem þar af hlýst. Skoðun 19.2.2025 20:32
Komið til hafnar 32 tímum eftir að þeir fengu trollið í skrúfuna Björgunarskip Landsbjargar dró skuttogara til hafnar á Patreksfirði snemma í morgun. Þá voru liðnar 32 klukkustundir frá því að skipið fékk veiðarfæri í skrúfuna norðvestur af Látrabjargi. Innlent 14.2.2025 12:38
Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Óvissustigi vegna ofanflóðahættu hefur verið aflétt á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum, en gert er ráð fyrir áframhaldandi óvissustigi á Austfjörðum fram til mánudags. Innlent 1.2.2025 18:58
Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Fjórtán íbúar á Patreksfirði, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu, hafa nú mátt snúa heim eftir á hættustigi var aflétt. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn víða í gildi en Veðurstofunni er kunnugt um nokkur krapaflóð sem hafa fallið frá því í gær, meðal annars yfir vegi á Vesturlandi og á Austfjörðum. Varðskip Landhelgisgæslunnar er í viðbragðsstöðu fyrir vestan og almenningur er hvattur til að fylgjast vel með færð enda geti vegir lokast vegna ofanflóða. Innlent 1.2.2025 12:20
Bæjarskrifstofur og heimili rýmd Heimili og atvinnuhúsnæði á Patreksfirði voru rýmd í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu. Hættustigi var lýst yfir skömmu fyrir ellefu og í kjölfarið voru sjö hús rýmd, eitt þeirra bæjarskrifstofan í bænum. Innlent 1.2.2025 09:24
Vestfirðingar þokast nær langþráðum vegabótum Borgarverk í Borgarnesi átti lægsta tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði og reyndist tilboð verktakans 280 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Vegagerðin snertir helsta náttúrudjásn Vestfjarða, fossinn Dynjanda. Innlent 28.1.2025 21:42
Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Tómas Guðbjartsson læknir er í óðaönn að reyna komast heim til fjölskyldunnar fyrir jólin. Hann segir ekkert ferðaveður vera á Vestfjörðum en að hans sögn hefði hann verið allur ef hann hefði verið mínútu fyrr á ferðinni þar sem að snjóflóð féll við Skorarnúp rétt áður en hann keyrði fram hjá fjallinu. Innlent 23.12.2024 18:39
Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Eitt lítið snjóflóð féll niður í Raknadalshlíð í morgun. Vegur að Patreksfirði er lokaður. Innlent 23.12.2024 10:14
Leitin að Áslaugu hefur engan árangur borið Leitin að Áslaugu B Traustadóttur, sem fram hefur farið á Tálknafirði undanfarna daga hefur enn ekki borið árangur. Innlent 13.12.2024 21:31
Lögreglan lýsir eftir Áslaugu Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu Helgu B. Traustadóttur. Áslaug fór að heiman frá sér á Tálknafirði síðastliðinn sunnudag. Innlent 12.12.2024 17:04
Gera hlé á leitinni í Tálknafirði Hlé hefur verið gert á leit að manni sem staðið hefur yfir í dag í Tálknafirði. Innlent 11.12.2024 20:55
Leita einstaklings í Tálknafirði Björgunarsveitir frá Tálknafirði, Patreksfirði og Bíldudal hafa verið kallaðar út til leitar í Tálknafirði vegna einstaklings sem ekki hefur náðst í um tíma. Innlent 11.12.2024 17:21
Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Vegagerðin skýrði frá því í dag að hún undirbúi núna útboð vegna þriðja áfanga nýbyggingar Vestfjarðarvegar um Dynjandisheiði á um 7,3 kílómetra kafla og einnig á um eins kílómetra kafla á Dynjandisvegi. „Áætlað er að útboðið fari í loftið á allra næstu dögum,“ segir í frétt Vegagerðarinnar. Innlent 29.11.2024 17:49
Krefst undanbragðalausra skýringa á því hversvegna Vestfirðir voru snuðaðir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður Vestfjarða og Norðvesturkjördæmis, krefst þess að samgönguyfirvöld skýri það undanbragðalaust fyrir komandi alþingiskosningar hversvegna vegaframkvæmdir í Gufudalssveit og á Dynjandisheiði stöðvuðust og hvort fjármunir, sem Alþingi hafði ráðstafað í verkin, hafi verið fluttir í Hornafjarðarfljót. Innlent 20.11.2024 11:50
„Getið þið ekki talað um eitthvað annað en þessa vegi!?“ Yfirskrift þessarar greinar er bein tilvísun í ummæli ónefnds fulltrúa samgöngunefndar Alþingis á fundi með kjörnum fulltrúum á sunnanverðum Vestfjörðum fyrir nokkrum árum. Svarið við þeirri spurningu var þá og er enn nei, við getum ekki talað um neitt annað þar sem samgöngur eru upphaf og endir allra mála sem eru til umræðu á sunnanverðum Vestfjörðum. Skoðun 11.11.2024 12:45
Þúsund lítrar af sýru láku á Bíldudal Slökkvilið Vesturbyggðar sinnti útkalli í nótt vegna mengunarslyss þegar þúsund lítrar af maurasýru láku úr bamba á iðnaðarsvæði á Bíldudal. Engan sakaði en maurasýra er gríðarlega ertandi, bæði við snertingu og innöndun. Innlent 9.11.2024 08:08
Tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum skóla Tímamót urðu í dag þegar fyrsta skóflustungan var tekin að nýjum Bíldudalsskóla, sem verður samrekinn leik- og grunnskóli ásamt frístund. Stór hópur bæjarbúa og annarra gesta kom til að verða vitni að stundinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vesturbyggð. Innlent 8.11.2024 16:39
Með húsaflutninga á heilanum Guðlaug Vilbogadóttir fornleifafræðingur segir ótrúlegt hve Íslendingar hafa verið öflugir að flytja hús landshluta á milli fyrir tíma krana- og flutningabíla. Guðlaug er með húsaflutninga á heilanum og skráir samviskusamlega niður sögu hvers hússins á fætur öðru, og gætir þess að eiginkona húseigenda sé tiltekin hverju sinni. Lífið 6.10.2024 10:01
Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Fisksjúkdómanefnd hefur mælt með að fiskeldisfyrirtækin fyrir vestan fái að nota eitur til að eiga við laxalús. Þorvaldur H. Þórðarson yfirdýralæknir segir menn ekki vilja sjá stöðu sem uppi var í fyrra og lúsinni fjölgi. Innlent 27.9.2024 11:11
Segist hafa væntingar um meira fé til samgöngumála Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir nýja samgönguáætlun verða lagða fyrir Alþingi í næsta mánuði og segist hafa væntingar til þess að þingmenn auki framlög til samgönguinnviða við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól. Innlent 25.9.2024 21:11
„Við erum hundfúl yfir þessu“ Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili. Innlent 13.9.2024 17:01
Þrjár skriður féllu á Barðaströnd Þrjár skriður féllu í hlíð milli bæjanna Miðhlíðar Ytri og Innri-Múla á Barðaströnd í nótt. Skriðusérfræðingur væntir þess að frekari fregnir af skriðuföllum berist þegar líður á morguninn, þegar er orðið almennilega bjart. Innlent 31.8.2024 09:00
Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Nýrnaveiki hefur greinst í löxum í sjókví Arnarlax í Arnarfirði. Dýralæknir fisksjúkdóma hjá MAST segir smitið hafa borist í kvína úr villtum löxum, en þar sé nýrnaveiki útbreidd. Svona smit geti skilað sér í aðeins meiri afföllum en hafi engin alvarleg áhrif. Innlent 6.8.2024 15:43