Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2024 10:31 Gunnlaugur Árni Sveinsson, sem er 18 ára gamall, varð í 5. sæti á Íslandsmótinu á Hólmsvelli í sumar. [email protected] Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson úr GKG átti frábæran hring í gær og er efstur á einu virtasta háskólamóti Bandaríkjanna í golfi.
Gunnlaugur Árni er á sínu fyrsta ári í Louisiana State háskólanum og því að taka sín fyrstu skref í bandaríska háskólagolfinu. Það kemur ekki í veg fyrir að hann sé efstur á Blessings Collegiate Invitational, þar sem hundrað kylfingar úr tíu háskólum keppa og þar af margir af bestu kylfingum háskólagolfsins. „HANN ER NÝNEMI!“ segir Golf Channel á Twitter-síðu sinni og sýnir myndband af fallegu pútti Gunnlaugs Árna fyrir fugli á átjándu flöt. HE'S A FRESHMAN! LSU's Árni Sveinsson shoots 5-under for the day, and leads entering the final round of the Blessings Collegiate Invitational. pic.twitter.com/zmhkcGEIWA— Golf Channel (@GolfChannel) October 1, 2024 Gunnlaugur Árni lék á -5 höggum í gær og er samtals á -6 höggum eftir tvo hringi af þremur. Hann er með þriggja högga forskot á næsta mann í einstaklingskeppninni. Frammistaða Gunnlaugs Árna veldur því einnig að LSU er efstur skólanna tíu í liðakeppni karla, á samtals +6 höggum, með tveggja högga forskot á Mississippi State. Mjög öruggur allan tímann Hver skóli er með tíu manna lið; fimm manna lið karla og fimm manna lið kvenna, og eru veitt verðlaun fyrir sigur í liðakeppnunum þremur og einstaklingskeppnum. Leikið er í Arkansas, þar sem að Arkansas Razorbacks unnu mótið í fyrra í öllum flokkum. Gunnlaugur Árni fékk sex fugla í gær, þrjá á fyrri níu holunum og þrjá á seinni. Eini skollinn hans kom á 14. holu. „Þetta var bara mjög öruggt frá fyrsta teighöggi fram að lokapúttinu. Ég man í raun bara eftir einum eða tvennum mistökum, og þetta var bara mjög örugg frammistaða.“
Golf Mest lesið Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Fótbolti Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn Handbolti Haaland yfirgaf völlinn á hækjum og í spelku Fótbolti Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Körfubolti Lýsa miklum áhuga Arsenal á manninum sem Man. Utd þráir Enski boltinn Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Körfubolti Búinn að skora gegn öllum en bíður enn eftir titli Fótbolti Vill hópfjármögnun fyrir Antony Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitakeppnin af stað Sport Tryggvi með rifu í vöðva og verður frá næstu vikur Körfubolti Fleiri fréttir Gunnlaugur Árni í hóp fjörutíu bestu í heimi Tiger og Trump staðfesta sambandið Gunnlaugur Árni fagnaði og fer í hóp fimmtíu bestu McIlroy vann einvígið en Spaun fór í vatnið Players endar í einvígi: „Halda allir að hann vinni“ Spaun með naumt forskot á Players en McIlroy á enn möguleika Justin Thomas jafnaði vallarmetið á öðrum degi Players Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar McIlroy tók síma af gjammandi áhorfanda Tiger Woods sleit hásin Tiger syrgir móður sína og sleppir Players Enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar og óviss hvort hann keppir á Players Ryder Cup snýr aftur á Stöð 2 Sport Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Sjá meira