Golf

Átta ára Rory McIlroy æfði sig í að hitta inn í þvotta­vél mömmu sinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rory McIlroy sést hér kominn í græna jakkann en til hliðar má sjá hann í þessu skemmtilega viðtali fyrir svo mörgum árum síðan.
Rory McIlroy sést hér kominn í græna jakkann en til hliðar má sjá hann í þessu skemmtilega viðtali fyrir svo mörgum árum síðan. Getty/Harry How/Skjámynd/BBC

Stórskemmtileg gömul viðtöl við Mastersmeistarann Rory McIlroy segja mikið til um á hvernig vegferð þessi stórbrotni kylfingur hefur verið á.

Ellefu ára bið McIlroy eftir risatitli lauk um helgina því norður-írski kylfingurinn náði að klára alslemmu golfsins á Augusta vellinum á sunnudagskvöldið. Norður-Írinn var ekkert að ljúga þegar hann talaði um að æskudraumur sinn væri þarna að rætast.

Í tilefni af sigri McIlroy á Mastersmótinu þá gróf Breska ríkisútvarpið upp gamalt viðtal við Rory þegar hann var aðeins níu ára gamall og þegar farinn að vekja athygli á golfvellinum.

Það er sérstaklega gaman að sjá þetta viðtal núna þegar Rory er búinn að tryggja sér sæti í fámennum hópi þeirra sem hafa unnið öll fjögur risamótin.

McIlroy var þarna nýkominn heim til Norður-Írlands frá Miami í Bandaríkjunum þar sem hann varð heimsmeistari tíu ára og yngri.

Þjálfari hans sagði frá því að hann æfði sig á hverjum degi og markmiðin voru skýr þegar rætt var við strákinn sjálfan.

„Ég ætla að verða atvinnumaður og vinna öll risamótin,“ sagði Rory kokhraustur. Viðtalið og fréttina má sjá hér fyrir ofan en fyrir neðan má sjá þegar strákurinn kominn í sjónvarpsþátt.

Þar frétti þáttarstjórnandi af því að strákurinn væri að æfa sig heima hjá sér með því að vippa í þvottavél móður sinnar. Hann lét Rory leika það eftir fyrir myndavélarnar sem og hann gerði. Það má sjá það myndband líka hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Rory vill veita leikmönnum Man United innblástur

Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy er alveg tilbúinn að mæta í nýja græna jakkanum sínum á leik hjá Manchester United á næstunni ef það myndi veita uppáhaldsfótboltaliði hans innblástur.

Fyrsti nýi meðlimurinn í 25 ár

Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy tryggði sér sigur í Mastersmótinu í golfi í gærkvöldi eftir dramatískan sigur í umspili.

Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót?

Rory McIlroy viðurkenndi að hann var farinn að hugsa um það hvort að það kæmi kannski aldrei að honum eftir að hafa beðið í ellefu ár eftir að fullkomna alslemmu golfsins. Í gærkvöldi komst hann loksins í græna jakkann eftirsótta og hefur því unnið öll risamótin á ferli sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×