Skoðun

Um Ölfus­ár­brú og veggjöld

Haukur Arnþórsson skrifar

Gjaldtaka af umferð er alþjóðlegt úrræði til að kosta samgöngubætur og varla verður við henni amast. Öllum stærri nýjum verkefnum hér á landi verður líklega mætt með slíku gjaldi. Hins vegar skiptir meginmáli hvernig að henni er staðið. Hún getur orðið mismunandi sanngjörn og mætt sjónarmiðum meðalhófs misvel. Þá getur hún náð misvel til allrar notkunar – og er þá átt við mikilvægi þess að ferðamenn greiði jafnt og landsmenn fyrir innviðanotkun.

Ég tel að niðurgreiðslukerfið sem notað er af Sjúkratryggingum fyrir lyfjakaup gæti hentað vel við töku vegagjalda - að breyttu breytanda. Þá á ég við að greiðslur minnki með aukinni notkun og notkun yrði mæld fyrir tiltekið tímabil; hvert tímabil hafi gjaldþak. Allir byrjuðu með autt borð og greiði fullt gjald í upphafi þess. Þannig greiddu þeir sem aka sjaldan – sunnudagsbíltúrsfólkið og ferðamenn sem aka um stuttan tíma hér á landi – fullt gjald, en stórnotendur gætu farið niður undir eða niður í núllið. Svona kerfi mætir sjónarmiðum landsbyggðarfólks og þeirra sem sækja vinnu á höfuðborgarsvæðinu langt að. En þeir hópar hafa áhyggjur af því að gjaldið verði dreifbýlisskattur.

Rökstyðja má að svona kerfi mæti sjónarmiðum meðalhófs. Í fljótu bragði virðist eðlilegast að gjaldfæra pr. bifreið og þá er greiðslan á ábyrgð skráðs eiganda, en líka má hugsa sér að miða greiðsluna við eigandann sem notanda – sem gefur möguleika á að hafa misjafnt gjald fyrir ólíka þjóðfélagshópa eins og gert er í lyfjamálum. Það myndi mæta meðalhófi enn betur – þótt gjaldið verði aldrei þrepaskipt eins og tekjuskattur.

Að þessu sögðu skulum við ræða um nýju Ölfusárbrúna. Í fjárlögum segir; „Ölfusárbrú er dæmi um framkvæmd, þar sem gert er ráð fyrir að gjaldtaka fyrir akstur um brúna standi undir kostnaði við fjármögnun, framkvæmd og rekstur verkefnisins.“ (bls. 172). Að einungis þeir sem aka um brúna greiði fyrir byggingu hennar segja starfsmenn ríkisábyrgðarsjóðs að gangi ekki upp – og auðvitað þarf ríkisábyrgð vegna framkvæmdanna.

Fleiri sjónarmið renna stoðum undir að einstaka vegaframkvæmdir verði ekki gjaldfærðar sérstaklega heldur vegakerfið í heild. Ástæðan er sú að úti á landi þar sem getur bæði þurft að reisa brýr og grafa jarðgöng er ekki næg umferð til að standa undir slíkum framkvæmdum. Enn annað sjónarmið er að við viljum láta ferðamenn greiða fyrir alla notkun innviða okkar – og þá þarf að gjaldfæra fyrir vegakerfið í heild. Annars keyra þeir væntanlega framhjá gjaldheimtustöðunum, í okkar dæmi yfir gömlu Ölfusárbrúna og Víkurskarð.

(Upp úr punktum á félagsmiðlum)

Höfundur er stjórnsýslufræðingur




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×