Árásin var þá sögð beinast gegn Safieddine. Herinn segir einnig að enn einn af leiðtogum samtakanna hafi verið felldur í árás í Beirút í dag. Sá hét Suhail Husseini og er sagður hafa komið að daglegri stjórn samtakanna, fjármálum þeirra og annarskonar skipulagningu.
Reuters hefur eftir Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, að Hezbollah séu höfuðlaus samtök. Nasrallah hafi verið felldur og nú hafi arftaki hans einnig líklega verið felldur. Fregnir hafa einnig borist af því að háttsettur íranskur herforingi hafi fallið í sömu árás. Ekkert hefur frést af Esmail Qaani, yfirmanns Quds-sveitar íranska byltingarvarðarins, frá því árásin var gerð.
Yfirvöld í Íran segja hann við góða heilsu en hafa ekki gert tilraun til að staðfesta það.
Þegar kemur að örlögum Safiddine hefur lítið sem ekkert heyrst frá Hezbollah. Ekkert hefur heyrst af Safieddine frá því í síðustu viku en hann hafði lengi verið undir væng Nasrallah og stýrði framkvæmdastjórn hryðjuverkasamtakanna. Þar hefur hann stýrt Hezbollah á pólitíska sviðinu en hann sat einnig í stríðsráði Hezbollah.
Fyrr í dag gaf Naim Qassem, sem er formlega næstráðandi Hezbollah, út yfirlýsingu um að hann væri tilbúinn til viðræðna um vopnahlé. Hann nefndi ekki að vopnahlé á Gasaströndinni væri skilyrði fyrir vopnahléi í Líbanon.
Þá sagði Qassem að hernaðarleg geta Hezbollah væri enn ósködduð, þrátt fyrir fjölmargar árásir Ísraela og dauða margra af helstu leiðtogum samtakanna á undanförnum dögum.

Bað líbönsku þjóðina um að losa sig við Hezbollah
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, birti einnig ávarp í dag sem hann beindi til Líbönsku þjóðarinnar. Þar sagði hann að dauði Nasrallah og dauði Safieddine, auk þess sem þúsundir meðlimir Hezbollah hefðu verið felldir eða þeir særst, fæli í sér tækifæri fyrir Líbanon til að losa sig við Hezbollah.
Samtökin hefðu ekki verið í jafn veikri stöðu um árabil.
„Nú standið þið, líbanska þjóðin, á mikilvægum krossgötum. Valið er ykkar,“ sagði Netanjahú samkvæmt Times of Israel. Hann sagði þjóðina geta tekið landið sitt aftur og stýrt því í átt að friði og velmegun.
Ef Hezbollah yrði ekki komið frá myndu meðlimir samtakanna halda áfram að berjast og skýla sér bakvið íbúa landsins.
„Frelsið landið ykkar frá Hezbollah svo ríkið geti blómstrað aftur, svo framtíðarkynslóðir líbanskra og ísraelskra barna þurfi ekki að búa við stríð eða blóðsúthellingar. Svo við getum loksins búið saman í friði.“
ראש הממשלה נתניהו בפנייה ישירה לאזרחי לבנון: "עומדת בפניכם הזדמנות להציל את לבנון - לפני שתיפול לתוך תהום של הרס וסבל בדומה לעזה" pic.twitter.com/2X8TC2Ep5F
— ישראל היום (@IsraelHayomHeb) October 8, 2024
Þrettán hundruð liggja í valnum
Forsvarsmenn ísraelska hersins sendu í dag fleiri hermenn inn í Líbanon. Nú hafa fjórar herdeildir verið sendar inn í Líbanon en samkvæmt AP fréttaveitunni hefur herinn ekki sótt dýpra inn í landið. Þess í stað hafa hermenn varið lengra með landamærunum en áður.
Þá segir herinn að meðlimir Hezbollah hafi skotið rúmlega 170 eldflaugum að Ísrael í dag.
Ísraelar hafa á undanförnum dögum og vikum gert fjölmargar og umfangsmiklar loftárásir í Líbanon. Rúmlega 1.300 manns hafa fallið í þessum árásum og meira en milljón hefur þurft að flýja heimili sín.