„Það er búið að liggja í loftinu ansi lengi að þessi ríkisstjórn er sprungin og búin að vera sprungin í lengri tíma. Þannig að það var í sjálfu sér bara tímaspursmál hvenær þau áttuðu sig á því sjálf. En þessi framkoma Bjarna, að mæta og koma með tilkynningu að hann ætli að fara í þingrof á fimmtudaginn kom svolítið flatt upp á mann. Sér í lagi miðað við hans svona fyrirætlanir um að þingið klári fjárlög hans ríkisstjórnar sem að hann er búinn að slíta. Mér finnst það koma svolítið spánskt fyrir sjónir, ég sé ekki alveg hvernig það er framkvæmanlegt,“ segir Þórhildur Sunna.
„En það er í sjálfu sér gott að þessi ríkisstjórn fer frá,“ segir Þórhildur Sunna. Píratar séu alltaf tilbúnir í kosningar. Þá segist hún ekki eiga von á að að innanflokksátök sem uppi hafa verið innan Pírata muni setja strik í reikninginn.
„Píratar gefa aldrei afslátt af prófkjöri. Við veljum alltaf á sem lýðræðislegan hátt þannig að við þurfum að drífa okkur að skella í prófkjör. Það er algjörlega næsta mál á dagskrá ef að þetta stendur sem Bjarni boðar, kosningar 30. nóvember, þá þurfa listar að vera tilbúnir 30. október.“