Fréttastofa BBC greinir frá. Maður að nafni Vem Miller, 49 ára að aldri, var handtekinn við einn innganginn á kosningafundinn eftir öryggisleit. Hann var með fjölmörg vegabréf og ökuskírteini í fórum sínum sem voru öll undir mismunandi nöfnum. Lögreglan lagði hald á skammbyssu og haglabyssu.
Lögreglan í Riverside-sýslu hélt blaðamannafund vegna atviksins í kvöld en þar kom fram að atvikið hafi ekki stefnt lífi Trump né gesta í hættu. Lögreglustjóri á svæðinu sagði að „þriðja banatilræðinu“ gegn Trump hafi verið afstýrt og vísaði til Miller sem „brjálæðings“.
Ryan Wesley Routh var handtekinn þann 15. september grunaður um að hafa haft í hyggju að ráða Trump af dögum. Hann var handtekinn eftir að lífverðir Trump komu auga á hann þar sem hann faldi sig í runna á golfvelli Trump með riffill.
Thomas Matthew Crooks, tvítugur maður, skaut í áttina að Trump úr felum á kosningafundi fyrrverandi Bandaríkjaforsetans í bænum Butler í Pennsylvaníu-ríki þann 13. júlí. Crooks var ráðinn af dögunum á vettvangi eftir að hafa skotið nokkrum skotum sem dróg einn gest til bana.
Óvíst er hvað vakti fyrir Miller í gær. Alríkislögreglan í Bandaríkjunum rannsakar nú málið en starfsmaður alríkislögreglunnar sagði í samtali við fréttastofu CBS að fátt bendi til þess að um banatilræði sé að ræða. Þau munu ákveða á næstu dögum hvort að atvikið falli undir tilraun til manndráps.