Þetta er í annað sinn sem Skeiða- og Gnúpverjahreppur samþykkir framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfið var samþykkt fyrir sextán mánuðum, þann 14. júní 2023.
Daginn eftir, þann 15. júní, felldi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hins vegar virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun úr gildi, sem Orkustofnun hafði gefið út í desember 2022. Þar með var forsenda framkvæmdaleyfisins brostin. Þann 13. september síðastliðinn gaf Orkustofnun svo út nýtt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun.

Með samþykkt Skeiða- og Gnúpverjahrepps í dag er Landsvirkjun komin með öll tilskilin leyfi til að hefja virkjunarframkvæmdir. Fastlega er hins vegar búist við að andstæðingar virkjunarinnar láti enn reyna á kærumöguleika og kæri leyfisveitingar til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Meirihluta sveitarstjórnar í málinu í dag mynduðu þau Haraldur Þór Jónsson oddviti, Bjarni Hlynur Ásbjörnsson og Vilborg Ástráðsdóttir frá L-ista og Gunnar Örn Marteinsson frá E-lista. Fulltrúi U-listans, Axel Á. Njarðvík, greiddi einn atkvæði gegn framkvæmdaleyfinu.
Í bókun segist meirihlutinn telja framkvæmdina vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna og önnur fyrirliggjandi gögn, þar með talda greinargerð umsækjanda.
Ýmis skilyrði eru þó sett varðandi mótvægisaðgerðir, vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar. Ennfremur að skipuð verði sameiginleg eftirlitsnefnd sem hafi eftirlit með því að öllum skilyrðum sé framfylgt.

Fulltrúi U-listans, Axel Á. Njarðvík, segir meðal annars í bókun:
„Fyrirhuguð Hvammsvirkjun mun hafa veruleg og óafturkræf áhrif á náttúru, lífríki og landslag. Öllum ætti að vera löngu ljóst, að tjónið og skaðinn sem Hvammsvirkjun mun valda á náttúru og samfélagi verður aldrei bætt.“
Jafnframt kveðst hann hafna heimild Umhverfisstofnunnar til breytingar á vatnshloti Þjórsár og telur hana ekki vera í samræmi við lög og reglur.

Í greinagerð meirihlutans er virkjuninni lýst svo:
„Inntakslón hennar, Hagalón, verður í farvegi Þjórsár norður af Skarðsfjalli. Lónið verður í um 116 metra hæð yfir sjávarmáli og um fjórir ferkílómetrar að stærð. Rúmmál lónsins verður um 13,2 milljónir rúmmetra. Stöðvarhús verður að mestu leyti neðanjarðar við norðurenda Skarðsfjalls, í landi Hvamms 1 í Landsveit.
Fyrirhuguð Hvammsvirkjun er vatnsaflsvirkjun staðsett á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár þar sem í dag eru sjö vatnsaflsstöðvar og verður virkjunin áttunda og neðsta stöðin. Hvammsvirkjun mun nýta allt að 352 m3/s rennsli og 32 m fall Þjórsár á um 9 km kafla frá svokölluðu Yrjaskeri, rétt ofan við bæinn Haga, og niður fyrir Ölmóðsey, austan við Þjórsárholt. Virkjunin nýtir miðlað rennsli Þjórsár frá lónunum ofar á vatnasviðinu.
Hvammsvirkjun er staðsett í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi, og verða flest mannvirki innan sveitarfélagsmarka Rangárþings ytra. Gert er ráð fyrir að afl virkjunar verði 95 MW og árleg orkuvinnsla um 740 GWh.“