Nýja brúin er við lítt uppgötvaða útivistarperlu sem vaxandi skógarreitir hafa verið að mynda í Grænugróf. Af brúnni opnast sýn að fögrum hluta Elliðaánna en brúin kemur yfir ána á slaufukafla og liggur á milli tveggja bugða í ánni.

Smíði brúarinnar, sem verktakafyrirtækið Gleipnir annast, er þó ekki lokið. Eftir er að setja á hana endanlegt brúarhandrið og koma fyrir lýsingu. Bráðabirgðagirðingar á brúarkantinum þjóna á meðan sem handrið. Þá er unnið að því að tyrfa jarðvegssár meðfram stígum.

Reykjavíkurborg stendur að brúargerðinni í Grænugróf. Hún er hluti verkefna samgöngusáttmálans milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu. Verksamningur með brú og stígum var upp á 322 milljónir króna. Borgin segir verkefnið í samræmi við þá stefnu hennar að efla vistvæna ferðamáta og að auka hlutdeild hjólreiða sem samgöngumáta í borginni.

Brúin og göngustígar henni tengdir gagnast þó ekki síst íbúum Vatnsendahverfis í Kópavogi. Með henni opnast þeim greið hjóla- og gönguleið inn til Reykjavíkur með tengingu við meginstígakerfi borgarinnar.

Brúin er 55 metra löng og 6,5 metra breið; nægilega breið til að unnt sé að skilja að gangandi og hjólandi umferð. Samkvæmt lýsingu á vef Reykjavíkurborgar munu tíu sentimetra blá rör mynda samhverf handrið, sem sveigjast á hliðum brúarinnar. Segir borgin þarna vísað í kalda vatnið og vatnsveituna.
Arkitekar eru Teiknistofan Stika í samvinnu við Tertu. Verkfræðingar eru Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar. Ljósahönnuðir eru Liska.

Þetta er önnur brúin sem byggð er á sama tíma í Víðidal. Um fimmhundruð metrum ofar í ánni er önnur brú að rísa. Sú er liður í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð. Suðurverk annast verkið fyrir Vegagerðina sem er í samstarfi við Kópavogsbæ og Reykjavíkurborg.

Tilkoma beggja þessara brúa mun opna á fjölbreyttari ferðamöguleika, hvort sem er fyrir gangandi, skokkandi eða hjólandi, á efri hluta Elliðaárdalssvæðisins á milli Breiðholtsbrautar og Vatnsveitubrúar. Þar hefur verið mun lengra á milli göngubrúa yfir árnar heldur en í neðri hluta dalsins, neðan Árbæjarstíflu.

Verkinu fylgja 800 metrar af nýjum stígum og verða göngu- og hjólastígar aðskildir þar sem því verður við komið. Í verkinu felast einnig breytingar á reiðstígum og gerð nýs áningarstaðar við Dimmu.