Skoðun

Af­hendum raun­veru­legum eig­endum hlut sinn í Ís­lands­banka til jafns

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar

Í gær kynntum við kosningaáherslur Miðflokksins. - Ekki alla stefnu flokksins heldur stefnu í þeim málaflokkum sem hafa áhrif á alla hina.

Skyndilegt fall ríkisstjórnarinnar hafði ýmsa kosti. Meðal annars þann að ekki gafst tækifæri til að klára ýmis mál þar sem var hægt og þarf að gera betur.

Mörg tækifæri hafa farið forgörðum í tíð fráfarandi ríkisstjórnar.

Það varð okkur landsmönnum til happs að ríkisstjórnin sprakk og náði ekki að klára öll áform sín.

Eitt af þeim var áætlun um að klára einkavæðingu Íslandsbanka. Ferli sem hefur gengið upp og ofan.

En fyrir vikið gefst tækifæri til að hrinda í framkvæmd áformum Miðflokksins frá því fyrir kosningar 2021 og, í annarri mynd, 2017.

Sú áætlun átti að vera framhald þess þegar ríkisstjórn áranna 2013-2016 tók yfir fjármálakerfið að miklu leyti, í nafni þess að það væri nauðsynlegt fyrir samfélagið.

Nú blasir við tækifæri til að afhenda raunverulegum eigendum Íslandsbanka sinn hlut beint og til jafns, þ.e. Íslendingum öllum.

Við leggjum til, enn sem oftar, að allir Íslendingar fái sinn hlut til jafns og geti farið með eign sína að vild.

Það er tímabært að stjórnvöld treysti fólki fyrir eigin eignum.

Þar með verða allir sem eru fæddir fyrir ákveðinn dag en ekki dánir, eignamenn. Svo ráðstafar fólk eign sinni eins og það telur best. Engin álitamál, ekkert vesen.

Stór aðgerð? Já. En slíkt hefur verið framkvæmt áður. Á sínum tíma tók Ríkisskattstjóri (nú Skatturinn) að sér að framkvæma aðgerð sem kölluð var „Leiðréttingin”. Þar var ráðist í leiðréttingu fasteignalána með jafnræði sem meginmarkmið.

Það gerðist vegna þess að ég var búinn að lofa því og það gekk eins og í sögu, mjög góðri sögu.

Miðað við núverandi gengi Íslandsbanka fengi hver einstaklingur í sinn hlut bréf í bankanum að verðmæti um 373.000 krónur. Um 1.250.000 á fjögurra manna fjölskyldu.

Það er e.t.v. ekki mjög há upphæð að mati sumra en upphæð sem skiptir máli út frá réttlæti og því að gefa fólki tækifæri til að mynda eign sem það ákveður sjálft hvernig það fer með. Loksins fær fólk tækifæri til að fara sjálft með eigin eign án þess að þurfa að reiða sig á visku stjórnmálamanna.

Fólk getur ákveðið að eiga eignarhlutinn og fá arðgreiðslur eða selja og fjárfesta í öðrum fyrirtækjum, greiða inn á húsnæðislán eða hvað sem hver og einn telur rétt fyrir sig.

Eflaust vakna einhverjar spurningar en svör fást á glænýrri heimasíðu Miðflokksins sem heitir eftir sem áður midflokkurinn.is.

Höfundur er formaður Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×