Þessu greinir Miss Earth keppnin frá á Facebook en Hrafnhildur er fyrsti fulltrúi Íslands í fegurðarsamkeppninni Miss Earth.
„Þokkafull sem vindurinn. Hrafnhildur Haraldsdóttir tekur við titlinum ungfrú jarðloft 2024. Hún er fulltrúi Íslands með glæsibrag og ástríðu fyrir umhverfismálum. Hrafnhildur er reiðubúin til að vekja fólk til umhugsunar um vandamál sem hafa áhrif á loftið sem við öndum að okkur,“ segir í tilkynningu Miss Earth.
Keppnin er ein af stærri fegurðarsamkeppnum heims, þar sem sérstök áhersla er lögð á umhverfisvernd og umhverfisvitund. Í gær voru krýndar Miss Earth, Miss Earth – Air, Miss Earth – Water og Miss Earth – Fire, titlar sem tengjast umhverfinu og náttúrunni.
Hin ástralska Jessica Lane var krýnd ungfrú jörð (e. Miss Earth) í gær og má því segja að Hrafnhildur hafi hafnað í öðru sæti í keppninni.
„Ég er yfi mig þakklát og auðmjúk fyrir að vera fyrst til að hafna í öðru sæti í Miss Earth 2024. [...] Þessi vegferð hefur verið ekkert minna en ótrúleg, full af erfiðisvinnu, seiglu og þroska. Ég er gríðarlega þakklát fjölskyldu minni, vinum og teyminu mínu og öllum þeim sem studdu mig í gegnum hvert skref á leiðinni. Stuðningur ykkar og ást hefur styrkt drauma mína og tilgang,“ skrifaði Hrafnhildur í færslu á Instagram-síðu sinni.