Skoðun

Bless Borgar­lína, halló Sunda­braut

Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Árið 1989 fluttu foreldrar mínir á Kjalarnes, sem þá þótti áhugaverður kostur fyrir unga fjöskyldu. Þar bauðst sérbýli á viðráðanlegu verði, fallegt umhverfi og átti Kjalarnes að vaxa mikið á næstu árum. Sundabrautin var á leiðinni og átti að auka aðgengi að bænum. Rétt eins og mörg loforð Reykjavíkurborgar þá fór Sundabraut aldrei í framkvæmd. Þvert á móti virðast ráðamenn borgarinnar gera allt til þess að þurfa ekki standa við þetta loforð. Sundabrautin samræmist ekki áformum þeirra um þéttingu byggðar og Borgarlínu, þeir vilja frekar fjarlægja götur en byggja þær.

Miðflokkurinn kynnti kosningaáherslur sínar síðastliðinn laugardag og voru skilaboðin skýr í samgöngumálum: Burt með Borgarlínuna, inn með Sundabrautina.

Fyrir þau sem kannast ekki við Sundabrautina þá er hún vegur sem nær frá miðbæ Reykjavíkur yfir á Kjalarnes. Hér að neðan mun ég setja mynd af einni útfærslu sem birtist nýverið. Kílómetrarnir sýna fjarlægðina frá upphafi brautarinnar á Kjalarnesi og línurnar eru afreinar þar sem er hægt að komast inn og útaf Sundabrautinni. Ef miðað er við að hámarkshraði væri 70, þá tæki 11 mínútur að keyra brautina frá upphafi til enda:

Sundabrautin hefur því miður orðið að eilífðarloforði flokka í Reykjavíkurborg sem gera svo ekkert til þess að hefja framkvæmdir. Hún minnir á hlaupár, hún kemur upp í umræðuna á fjögurra ára fresti og gleymist svo þar til næsta hlaupár brestur á eða í þessu tilfelli, kosningabarátta. Við í Miðflokknum segjum að nú sé komið nóg, endurskrifa þarf samgönguáætlun þar sem farið er í raunverulegar lausnir og er Sundabrautin efst á lista sem lausn fyrir Reykjavík.

Með uppbyggingu Sundabrautarinnar opnum við ekki bara á að gera Kjalarnesið að vænlegri kosti til uppbyggingar heldur opnar hún á uppbyggingu á Geldingarnesi ásamt því að rýmka fyrir umferð úr Mosfellsbæ, Grafarvogi og Grafarholti niður í miðbæ Reykjavíkur. Hún mun einnig virka sem greið neyðarleið frá höfuðborgarsvæðinu skyldi eitthvað gerast. Þetta er borðlagt.

Á Kjalarnesi eru allir helstu innviðir til staðar: Grunnskóli, leikskóli og frábær sundlaug, sem allt er hægt að nýta og stækka. Það þyrfti að vísu að koma upp matvöruverslun en þangað til er ég viss um að Fríða í Esjuskálanum geti séð fyrir þörfum bæjarbúa.

Atkvæði með Miðflokknum er því atkvæði með: Auknu lóðaframboði, auknum húsnæðismöguleikum, uppbyggingu nýrra hverfa og betri samgöngum. Við ætlum að uppfylla „íslenska drauminn“ eins og var kynnt í kosningaáherslum flokksins.

Sem Kjalnesingur þá mun ég nýta mína krafta í þessari kosningabaráttu til þess að gera öllum ljóst að Sundabrautin er ekki bara sniðug, heldur ættu framkvæmdir geti hafist sem fyrst með Miðflokkinn í ríkisstjórn, enda arðbærasta samgönguframkvæmd á landinu.

Höfundur er frambjóðandi í 4. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×