Skoðun

Mikill má máttur Við­reisnar og á­hrif um alla Evrópu, líka á Pútín, vera

Ole Anton Bieltvedt skrifar

Fyrr í dag birti Hjörtur J. grein hér á Vísi undir fyrirsögninni „Verðbólga í boði Viðreisnar“.

Hjörtur hefur ýmislegt frá sér sent, sem illa stenzt það, sem satt er og rétt, og heggur hann hér í sama knérunn. Illþyrmilega. Í raun er með ólíkindum, hvað drengurinn leyfir sér að bera á borð fyrir ágæta lesendur Vísis og nú kjósendur. Hvar er virðingin við lesendur, svo að ekki sé talað um sjálfsvirðinguna?

Hvernig í ósköpunum á Viðreisn með 1 mann í borgarstjórn, af 23, og 5 á þingi, í stjórnaraðstöðu - ekki í ríkisstjórn, án ráðherra - að bera ábyrgð á verðbólgunni á Íslandi!? Ég verð bara að segja, Hjörtur J., þú mátt skammast þín fyrir svona ómerkilegan málflutning, því þú veizt auðitað miklu betur en svo.

Sök Viðreisnar á, annars vegar, að vera sú, að borgarstjórn Reykjavíkur hafi úthlutað of fáum lóðum síðustu árin, og, að það hafi leitt til lóðarskorts, sem aftur hafi leitt til verðbólgu.

Um lóðaúthlutanir Reykjavíkurborgar má eflaust deila, hvort hér hafi verið staðið vel að verki, eða ekki, en í borgarstjórn eru 23 fulltrúar, þar af á Viðreisn 1.

Skyldi einhverjum öðrum en Hirti J. detta í huga, og reyna að fullyrða, að þessi eini fulltrúi Viðreisnar, af 23, skuli ráða þar öllu um lóðaframboð!?? Önnur eins firra.

Annað mál er það, að það er margt annað, sem hefur tafið fyrir byggingu húsnæðis í Reykjavík og annars staðar, en lóðaframboð. Margir hafa fengið lóðir, hefðu getað byggt, en treystu sér ekki í það vegna okurvaxta Seðlabanka og ríkisstjórnar. Dæmi eru um, að lóðir, sem búið var að úthluta hafi staðið í ónýttar árum saman, vegna vangetu byggingarverktaka til framkvæmda.

Hins vegar fullyrðir Hjörtur J., að verðbólgan hér sé innflutt frá Evrópu, frá Evrópusambandinu, og, að Viðreisn beri ábyrgð á því!!??

Þessi drengur hlýtur að hafa gengið illilega á ljósastaur, eða runnið til í bleytu, og lamið hausnum utan í gangstéttarkant, og snarruglast. Sennilega átti óhappið sér stað fyrir nokkru, en í stað bata, hefur drengnum því miður bara hrakað. Eiginlega sorglegt.

Verðbólga í Evru-löndunum 26 var í september 1,7%, á Íslandi er hún 5,1%. Hvernig geta Íslendingar þá verið að flytja inn verðbólgu frá Evrópu?

Verðbólgan var hærri í Evrópu fyrir 1-2 árum. Það gerðist í framhaldi af árás Pútíns á Úkraínu - skyldi Viðreisn hafa stjórnað henni - og þau viðbrögð vestrænna ríkja, að hætta þá sem mest viðskiptum við Rússland með olíu og gas.

Það bar brátt að og leiddi tímabundið til verulegra hækkana á olíu, bensíni og gasi, sem aftur kynnti upp verbólguna, meðan Evrópa var að finna sér aðra orkubirgja, en það er nú löngu afstaðið.

Verðbólga í Evru-löndum í september, sem sagt, 1,7% og 2,1% í öllu ESB.

Hjörtur J. er einn þeirra, sem veit ýmislegt vel, en hagræðir því sínum málflutningi til stuðnings, bútar í sundur, endurraðar, umbreytir og rangfærir, í trausti þess, að lesendur viti lítið um málið og trúi honum.

Fyrir mér ljótur leikur, en ég hygg, að margur lesandinn sé betur að sér, en Hjörtur heldur, sjái í gegnum þennan ljóta leik og átti sig á, hvað satt er og rétt. „Fake News“, „Fake Stories“, eru, hvað sem því líður, stórfellt og hættulegt vandamál okkar tíma.

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×