Auk dróna skutu Rússar fjórum Iskander-M skotflaugum.
Herforingjaráð Úkraínu segir 76 dróna hafa verið skotna niður og aðra hafa týnst og þá líklega vegna rafrænna varna og truflunarsendinga Rússa. Þá segir herforingjaráðið að fimm drónar hafi flogið til Belarús.
Flestir drónarnir eru sagðir hafa verið af gerðinni Shahed, sem Rússar fengu upprunalega frá Íran og framleiða nú í miklu magni sjálfir. Það eru sjálfsprengidrónar en Rússar eru einnig farnir að framleiða ódýrari dróna sem eiga að trufla loftvarnarkerfi Úkraínumanna með truflunarsendingum og öðrum leiðum og var einnig notast við slíka dróna í nótt.
Engar fregnir hafa borist af mannfalli vegna árásarinnar.
Árásin olli þó rafmagnsleysi í borginni Ternopil í vesturhluta Úkraínu og í mest öllu Ternopil-héraði. Reuters hefur eftir héraðsstjóra Ternopil að árásin hafi valdið töluverðum skaða og það muni taka langan tíma að laga skemmdirnar, með tilheyrandi truflunum fyrir íbúa héraðsins.
Árásin er einnig sögð hafa valdið skemmdum á öðrum innviðum eins og heitu vatni og drykkjarvatni. Talið er að þær skemmdir verði þau auðveldara að laga.
Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á innviði og íbúðarhús í Úkraínu á undanförnum mánuðum með drónum, eldflaugum og kröftugum svifsprengjum.
Auka framleiðslugetu á eldflaugum í Norður-Kóreu
Rússar hafa fengið mikið magn hergagna frá Norður-Kóreu frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst. Meðal annars hafa þeir fengið mikið magn skotfæra fyrir stórskotalið og skammdrægar eldflaugar til árása í Úkraínu.
Útlit er fyrir að í staðinn sé Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, að fá hernaðaraðstoð og hernaðartækni frá Rússlandi.
Sjá einnig: Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn
Sérfræðingar segja gervihnattamyndir benda til þess að miklar framkvæmdir eigi sér stað við eina af helstu eldflaugaverksmiðjum Norður-Kóreu. Þar eru svokallaðar KN-23 eldflaugar framleiddar og þær hafa Rússar notað til árása í Úkraínu.

Í frétt Reuters segir að umræddar myndir hafi verið teknar í október og eru þær sagðar sýna að unnið sé að aukinni framleiðslugetu í verksmiðjunni. Sérfræðingar hugveitunnar James Martin Center for Nonproliferation Studies telja að til standi að auka framleiðslugetu töluvert og benda á að verið sé að reisa nýtt verksmiðjuhúsnæði sem bæti allt að sjötíu prósentum við það svæði þar sem unnið sé í verksmiðjunni.
Ríkismiðlar Norður-Kóreu sýndu í fyrra myndir af Kim í verksmiðjunni og mátti sjá starfsfólk vinna að því að setja saman KN-23 eldflaugar.
Þær eldflaugar eru hannaðar til að fljúga nærri jörðinni og eiga þannig að komast hjá loftvarnarkerfum. Þær voru fyrst teknar í notkun árið 2019.