Tónlist

Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Dr. Gunni tryllti allt í fiskabúrinu.
Dr. Gunni tryllti allt í fiskabúrinu.

Dr. Gunni og félagar í Dr. Gunna fóru mikinn þegar þeir mættu í fiskabúri X-ins 977 í nýrri þáttaröð sem birtist á Vísi og ber heitið LIVE IN A FISHBOWL. Félagarnir voru í essinu sínu og spiluðu gamalkunnug lög í bland við ný.

Þetta er tónleikaröð sem tekin er upp í hljóðveri X-ins 977, því sem undanfarin ár hefur verið kallað fiskabúrið. Hið pínulitla stúdíó fékk nafnið upprunalega þegar X-ið var í Aðalstræti með stóran glugga út á Ingólfstorg. Þegar fólk horfði inn af torginu var eins og starfsmenn væru þar inni í fiskabúri.

Sveitin hefur haft nóg fyrir stafni og gaf nýverið út sína þriðju plötu, plötuna Er ekki bara búið að vera gaman? Doktorinn sjálfur er í feykilegu stuði í fiskabúrinu og syngur meðal annars um að vera alltaf á leiðinni, til að drepa þig.

Klippa: Live in a Fishbowl - þriðji þáttur Dr. Gunni

Tengdar fréttir

Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinuHAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 

Biggi Maus er annar gestur í fiskabúri X-ins 977 í nýrri þáttaröð sem birtist á Vísi og ber heitið LIVE IN A FISHBOWL. Þetta er tónleikaröð sem tekin er upp í hljóðveri X-ins 977, því sem undanfarin ár hefur verið kallað fiskabúrið en það er vel við hæfi að Biggi haldi þar nú tónleika enda er nafnið skírskotun í goðsagnakennt lag Maus.

Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman

Hljómsveitin Dr. Gunni hefur sent frá sér sína þriðju plötu, plötuna Er ekki bara búið að vera gaman? Að sögn doktorsins sjálfs er um að ræða miðaldrakarlarokk fyrir lengra komna en hann segir sveitina staðráðna í að leggja land undir fót, helst í Grænlandi eða Færeyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.